Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Rúmgóða og fallega 115,8 fm 3ja herberja íbúð á 1. hæð með stæði í bílageymslu við Sogaveg 73 í Reykjavík. Húsið er nýlegt hús í grónu og fallegu hverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu og er eignin mjög miðsvæðis í borginni, stutt er í leikskóla og grunnskóla.✅Sér bílastæði í bílakjallara.
✅Tvö svefnherbergi.Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofa er opið rými með fataskáp og harðparketi á gólfi..
Eldhús: Eldhús er með ljósri innréttingu frá GKS og eru tæki frá AEG. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa- og borðstofa liggja saman í opnu rými. Útgengt er úr borðstofu á vestursvalir og úr stofu út á lítinn afgirtan sérafnotarétt. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi er með sturtu, tengi fyrir þvottavél og opnanlegum glugga, flísar eru á gólfi. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi: Barnaherbergi er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Geymsla: Geymsla er í sameign og er 15,8 fm.
Bílastæði í upphituðum bílakjallara.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.