Fasteignaleitin
Skráð 27. maí 2026

Ferjubakki 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
101.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
688.670 kr./m2
Fasteignamat
62.900.000 kr.
Brunabótamat
48.250.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2047623
Landnúmer
111853
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar að mestu
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
ath
Gluggar / Gler
Endurnýjað að mestu
Þak
Nýlega málað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nettar suðursvalir
Upphitun
Hitaveita - ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fóðrun frárennslislagna undir plötu og út í brunn - framkvæmdasjóður borgar.
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Mikið endurnýjuð og virkilega snyrtileg, fjögurra herbergja 91,1fm íbúð á annarri hæð auk 10,4fm geymslu í kjallara í stóru fjölbýli í Bökkunum. 
Stutt í helstu þjónustu í Mjóddinni og útivistarsvæði í Elliðaárdalnum.  - NÆG BÍLASTÆÐI -

Komið er inn í íbúðina á herbergjaganginum, góður fataskápur þar og hengi fyrir yfirhafnir. Á hægri hönd er sameiginlegt opið rými stofu og eldhúss en svefnherbergin og baðherbergið til vinstri.
Í stofunni er mjór gluggi að gólfi í horninu og nýlegt parket á gólfi sem flæðir um alla íbúðina nema baðherbergið.  Gengt er út á nettar suður svalir.  Eldhúsið endurnýjað árið 2022 með innréttingu frá IKEA og vönduðum tækjum frá Beko og SIEMENS, spanhelluborð í eyju með skúffum.  Svefnherbergin eru þrjú, tvö þeirra vel stór og það þriðja heldur minna en stór fataskápur í því.  Baðherbergið endurnýjað á þessu ári, gólfið flotað og veggir klæddir með Dumaplast plötum með flísamynstri. Sturta með forsteyptum botni og glerþili, nýjar lagnir að og frá henni sem og fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt klósett, handlaug á skúffuskáp og speglaskápur yfir. Pláss fyrir hillur eða skáp á bak við hurðina.  
Rúmgóð geymsla í kjallaranum auk hefðbundinnar hjólageymslu, þvottahúss og þurrkherbergis í sameign.  Stigagangurinn teppalagður og aðkeypt þrif á honum. 
Húsfélagið er vel statt og á góðan framkvæmdasjóð sem alltaf safnast í.  Það hefur staðið fyrir miklum viðhaldsframkvæmdum á blokkinni undanfarin ár, t.d. voru árin 2021-22 múrskemmdir lagaðar og húsið allt málað, þakkantur lagaður, skipt um flestalla glugga og svalaeiningar og bílastæðin malbikuð og máluð svo eitthvað sé nefnt.   Þá stendur til að fóðra frárennslislagnir undir húsinu og út í brunn í sumar en vel stæður framkvæmdasjóður mun standa straum af þeim kostnaði samkvæmt yfirlýsingu frá formanni húsfélags. 
Blokkin stendur á rólegum stað rétt efst í Bakka-hverfinu og mikil græn leik- og útivistarsvæði þar í næsta nágrenni.  Þá er leikskólinn Fálkaborg í léttu göngufæri og stutt í verslun og helstu þjónustu í Mjódd. 
Frábær fjölskyldueign í barnvænu umhverfi.

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/08/202240.100.000 kr.54.900.000 kr.101.5 m2540.886 kr.
08/11/200716.955.000 kr.17.700.000 kr.101.5 m2174.384 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjadalur 2
Skoða eignina Engjadalur 2
Engjadalur 2
260 Reykjanesbær
119.8 m2
Fjölbýlishús
413
542 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Krókahraun 8
Bílskúr
Skoða eignina Krókahraun 8
Krókahraun 8
220 Hafnarfjörður
125.6 m2
Fjölbýlishús
312
676 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 7
Opið hús:31. maí kl 14:00-14:30
IMG_1014.JPG
Skoða eignina Álfheimar 7
Álfheimar 7
104 Reykjavík
194.5 m2
Fjölbýlishús
535
668 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 16
Bílskúr
Skoða eignina Austurberg 16
Austurberg 16
111 Reykjavík
153.9 m2
Fjölbýlishús
413
500 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin