Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 9 (501)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
271.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
410.000.000 kr.
Fermetraverð
1.511.242 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Byggt 2026
5. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
4997009
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
501
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir:

Sérlega glæsilega útsýnisþakíbúð með aukinni lofthæð, veglegum þaksvölum og fallegri sjávarsýn. Íbúðir á efstu hæðum eru með þaksvölum með stórbrotnu útsýni til fjalla og yfir hafið. Frá íbúðunum blasir við útsýni til Bláfjalla og Bessastaða, auk víðáttumikils landslags höfuðborgarsvæðisins. Íbúðirnar eru með aukinni lofthæð og skilast tilbúin til innréttinga. Verð fyrir fullkláraða íbúð má finna í Nánari lýsingu að neðan. Allar íbúðirnar eru búnar sérstöku loftræstikerfi. Rýmin eru björt og notaleg þökk sé gólfhita og stórum gluggum. Þakíbúðirnar eru aðeins sýndar í einkasýningu.

Allar nánari upplýsingar veita Friðjón í s. 692 2704 og Friðrik í s. 616 1313


Nánari lýsing:

Íbúð 501 er útsýnisþakíbúð með stóraukinni lofthæð og veglegum þaksvölum sem skapa einstakan griðastað innan sem utandyra. Íbúðin skiptist í bjart og opið alrými sem hentar jafnt til daglegs lífs og móttöku gesta, ásamt vel skipulagðri svefnherbergisálmu.

Alrýmið er bjart og glæsilegt með samliggjandi stofu, setustofu með möguleika á uppsetningu arins, borðstofu og eldhúsi með eyju, auk víngeymslu og búrs. Úr alrýminu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir með fallegri sjávarsýn.

Svefnherbergisálman samanstendur af þremur rúmgóðum svefnherbergjum ásamt notalegum sjónvarpskrók.

Hjónasvítan er með innangengu fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á austursvalir sem njóta morgunsólar.

Íbúðin er jafnframt búin sérþvottahúsi, öðru baðherbergi og gestasnyrtingu.

Bílastæði nr B87 & B88. Frístundaskúr nr 0011. Tvennar þaksvalir eru samtals 71,2 m2 og 10,3 m2 að stærð.

Kaupendur sem koma snemma að kaupum geta haft áhrif á efnisval og útfærslur. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Sjá nánar sölusíðu verkefnis HÉR !

Auglýst verð miðast við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Í boði er að fá íbúðir afhentar fullkláraðar án megingólfefna og eftir atvikum frágang arins og útisvæðis. Verð á íbúð 501 miðað við slík skil er kr. 440.000.000,- Sé þess óskað geta kaupendur valið um hönnunarþema, Yl eða Stein. Innréttingar verða þá frá Parka og Voke III og vönduð tæki frá Siemens, þmt. helluborð með innbyggðri viftu og þráðlausri stýringu, sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar.

Frystiskápar og vínkælar í völdum íbúðum. Íbúðirnar verða búnar snjöllu hússtjórnunarkerfi frá Free@home sem gerir íbúum kleift aðstýra hitastigi, lýsingu, gardínum og fleiru á einfaldan hátt. Tæknimaður sér um uppsetningu kerfisins í hverri íbúð og leiðbeinir um notkun þess. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.

Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar eignir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr, tímalausa hönnun og nútímaþægindi, fyrir þau sem vilja aukin lífsgæði og fallega sjávarsýn.

Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðuskipulagi. Alrými þeirra eru björt og rúmgóð og skapa aðlaðandi umgjörð umdaglegt líf og samveru með fjölskyldu og vinum. Í hjarta byggðarinnar er skjólgóður inngarður og til suðurs tekur við hafnarsvæði Kársness sem er í umbreytingu, en þar munu mannlíf og náttúra mætast.

Fjölbreytt afþreyfing er í boði í frístundarými sem staðsett verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og er opið sameiginlegt fyrir íbúa í húsinu. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, útisvæði með heitum- og köldum potti ásamt saunu. Þá verður golfhermir og aðstaða fyrir pílukast.
Næg bílastæði verða á lóðinni en 103 sérmerkt stæði eru í bílakjallara auk þess sem 58 bílastæði verða á lóð hússins.

Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds sem munu glæða höfnina lífi. Fyrir framan Vesturbakka er gert ráð fyrir bryggju- og hafnaraðstöðu, sem veitir siglingaáhugafólki einstakt tækifæri til að hafa bát sinn við bryggju. Staðsetningin á Kársnesinu sameinar nálægð við náttúruna og fjölbreytta þjónustu. Með tilkomu Fossvogsbrúarinnar styrkist tengingin við Reykjavík ennfrekar og greið leið opnast að miðborginni, háskólasvæðunum og útivistarparadísinni í Nauthólsvík

Sjá upplýsingabækling HÉR !

Nánari upplýsingar veita :

Friðjón Örn Magnússon lgfs. í s. 692 2704 og fridjon@miklaborg.is

Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkabraut 9 (502 )
Efsta hæð
skjamynd-2026-11-12-195324.png
Bakkabraut 9 (502 )
200 Kópavogur
267,4 m2
Fjölbýlishús
4
1272 þ.kr./m2
340.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 9 (501)
Efsta hæð
Bakkabraut 9 (501)
200 Kópavogur
271,3 m2
Fjölbýlishús
433
1511 þ.kr./m2
410.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 13b (507)
Efsta hæð
Heitur pottur
Bakkabraut 13b (507)
200 Kópavogur
180,8 m2
Fjölbýlishús
322
1604 þ.kr./m2
290.000.000 kr.
Skoða eignina Bakkabraut 13b (507)
Efsta hæð
Heitur pottur
420_steinn_livingspace3.jpg
Bakkabraut 13b (507)
200 Kópavogur
180,8 m2
Fjölbýlishús
322
1604 þ.kr./m2
290.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin