Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Knarrarberg 8, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða 4ra herbergja einbýlishús með stórum bílskúr.
BIRT STÆRÐ EIGNAR SAMKVÆMT HMS ER 162,7 FM OG ÞAR AF ER ÍBÚÐARHLUTI 109,2 FM OG BÍLSKÚR 53,5 FM. BÚIÐ ER AÐ STÆKKA BÍLSKÚRINN OG ER HANN 90,24 FM. OG AÐ AUKI HEFUR VERIÐ BYGGÐUR 10 FM SÓLSKÁLI OG ER ÞVÍ HEILDARSTÆRÐ EIGNARINNAR 209,44 FM. Eignin er staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttahús.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofa, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gang, þvottahús, geymslu (búr) og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa / sólstofa: Sólstofa var byggð við 2010, gólfhiti, skápur við forstofu, flísar á gólfi.
Stofan / borðstofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi.
Eldhús: Eldhús með góðu skápa plássi, flísar á milli skápa, helluborð, bakarofn í vinnuhæð, uppþvottavél, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi, innfelldir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, innfeldur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, innfeldur fataskápur, parket á gólfi.
Gangur: Parketlagður svefnherbergisgangur.
Baðherbergi: Hvít innrétting, sturtuklefi, salerni, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Inn af eldhúsi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, útgengi út í garð, vaskur, gott skápa pláss, flísar á gólfi.
Geymsla / búr: Inn af þvottahúsi, hillur, dúkur á gólfi.
Bílskúrinn: Rúmgóður 90,24 fm bílskúr, búið er að stækka bílskúrinn, gryfja í gófli, heitt og kalt vatn, hiti, loftrörakerfi, bílskúrshurðaopnari, flísar á gólfi.
Lóð: Fallegur einstaklega skjólsæll og gróinn garður. Framan við húsið er steypt innkeyrsla, stétt að og umhverfis húsið er hellulögð. Aftan við húsið er sólpallur til suður, þvottasnúrur.
Staðsetning: Smellið hér. ATHUGIÐ AÐ UM DÁNARBÚ ER AÐ RÆÐA. SELJENDUR HAFA EKKI BÚIÐ Í HÚSINU OG ÞEKKJA Þ.A.L. EKKI ÁSTAND HENNAR TIL HLÍTAR. KAUPENDUR ER ÞVÍ HVATTIR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA MEÐ ÞAÐ Í HUGA OG LEITA SÉR AÐSTOÐAR FAGMANNS.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is og Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteigngasali í síma 697 6288 eða ragnheidur@helgafellfasteignasala.isÞorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.