Fasteignaleitin
Skráð 27. apríl 2026

Suðurhella 16 íb.306

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
123.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
645.816 kr./m2
Byggt 2024
3. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
253181411
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

BÓKIÐ SKOÐUN. SÝNUM SAMDÆGURS!

Heimili fasteignasala kynnir til sölu nýjar og glæsilegar fullbúnar tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 16 í Hafnarfirði. Allar íbúðir afhendast með innréttingum og skápum frá Axis, gólfefni frá Birgisson og full frágenginni sameiginlegri lóð með leiktækjum á bak við hús. 
Traustur verktaki. Gott fm verð. Næg bílastæði og hægt er að sækja um hlutdeildarlán á þessa íbúð.

Nánari lýsing.
Íbúð 306 er 123,1 fm fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð og skiptist í anddyri, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á svalir og útsýni yfir hraunið. Næg bílastæði. 

Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi. 
Borð- og setustofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér svalir íbúðar sem snúa til suðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hraunið og til fjalla. 
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi . Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson. 
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.

Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru. Sjón er sögu ríkari!
 
Fyrir nánari upplýsingar og skoðanir hafið samband við: 
Brynjólf Snorrason lgf., brynjolfur@heimili.is, 896-2953
Önnu Sigurðardóttir lgf., as@heimili.is, 898-2017
Gunnlaug A. Björnsson lgf., gab@heimili.is, 617-5161


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
100.5 m2
Fjölbýlishús
413
596 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Krummahólar 8 (410)
IMG_6740.JPG
Krummahólar 8 (410)
111 Reykjavík
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
567 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Lindasmári 37
Skoða eignina Lindasmári 37
Lindasmári 37
201 Kópavogur
109.2 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Snægil 13 íbúð 201
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 16:00-16:45
Snægil 13 íbúð 201
603 Akureyri
102.1 m2
Fjölbýlishús
413
730 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin