Fasteignaleitin
Skráð 29. apríl 2026

Hringbraut 48

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
129.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
807.544 kr./m2
Fasteignamat
92.950.000 kr.
Brunabótamat
59.100.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2004212
Landnúmer
101298
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegar / Endurnýjaðar að hluta 2017
Raflagnir
Upprunalegt / Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegar / Endurnýjaðar að hluta 2017
Gluggar / Gler
Upprunalegir - endurnýjað að hljuta 2019 Tvöfalt gler
Þak
óvitað / þarfnast endurnýjunar
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sbr. fundargerð 13.4.26 ákveðið að fá tilboð í gerð rafmagnstöflu í sameign, áhugi á að gera garðinnn fínan með því að kaupa tré.
sbr. húsfélagsyfirlýsingu dags 20.4.2026:
yfirstandandi framkvæmd : einfasa frádráttarælir fyrir sameign.
Væntanlegar : framkvæmd á þaki. Hugsanlega sumar 2027.  Ástand þess er óljóst. Verið að safna í hússjóð, ósamþykkt og ekkert ákveðið.
Gallar
sjá ástandsyfirlýsingu seljanda.
ath. eign hefur verið breytt sbr. við teikningar. sjá að eldhús er í svefnherbergi austan megin samkv. teikningu, semsagt hefur ekki verið breytt í teikningum til að færa fram í stofu. Vert að nefna að fasteignasala kannar ekki hvort aflað hafi verið byggingarleyfis við tilfærslu á vatnslögnum osfrv. og bendir kaupendum á að kynna sér hjá bæjaryfirvöldum eða spyrja fasteignasla meira út í málið. 
Vönduð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á vinsælum og eftirsóttum stað að Hringbraut 48 í 101 Reykjavík.
Íbúðin er mikið endurnýjuð og er á fyrstu hæð í fallegu húsi. Með íbúðinni fylgir sér bílastæði við vesturhluta hússins.

* Eigandi er opin fyrir skiptum á minni íbúð á svipuðu svæði ( Vesturbæ / Miðbæ )
* 129,9m2 hæð / fjölbýli
* Íbúðin mikið endurnýjuð árið 2018. 
* 4 svefnherbergi


Páll Pálsson, Lgf /  7754000 / palli@palssonfasteignasala.is
Helen Sigurðardóttir, Lgf / 849-1921 / helen@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is 
www.verdmat.is 
Ráð fyrir kaupendur

Birt stærð samkv. HMS er 129,9 m2.

Eignin skiptist í gang, eldhús, 4 svefnherbergi, stofu,  baðherbergi, geymslu, sameiginlega hjólageymslu og þvottahús.
Gengið er inn í gang með fatahengi og nýlegu parketi á gólfi.
Eldhús hefur verið endurnýjað með ágætri innréttingu, ofn, helluborð, vegghillur og rými fyrir stórt eldhús/borðstofuborð. Nýlegt parket á gólfi.
Þrjú svefnherbergi sem eru rúmgóð og með nýlegu parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp og nýlegu parketi á gólfi.
Stofan er björt og myndar opið rými með eldhúsi. Nýlegt parket á gólfi.
Baðherbergi er endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf, vegghengt klósett og baðkar/sturta.
Geymsla, (16m2) er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi þar sem pláss er fyrir þvottavél. Möguleiki er að nýta hluta geymslunnar sem vinnuherbergi.
Innangengt er frá íbúð að sameiginlega rýminu og útgengt út í bakgarð/port. í kjallara er er einnig sameiginleg hjólageymsla.
Einkabílastæði fylgir íbúðinn og er við vesturhluta hússins.
 
Gluggar voru endurnýjaðir 2019 og sett í tvöfalt hljóðeinangrandi gler.
Frábær staðsetning. Göngufæri í leikskóla, grunnskóla og annað menningarlíf miðbæjar Reykjavíkur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 450 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/09/201745.800.000 kr.47.000.000 kr.129.9 m2361.816 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholtsvegur 81
Opið hús:23. maí kl 14:30-15:00
Langholtsvegur 81
104 Reykjavík
69.7 m2
Fjölbýlishús
312
859 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Veghús 31
Skoða eignina Veghús 31
Veghús 31
112 Reykjavík
70.2 m2
Fjölbýlishús
211
882 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Kelduland 1
Opið hús:26. maí kl 17:45-18:30
Skoða eignina Kelduland 1
Kelduland 1
108 Reykjavík
58.3 m2
Fjölbýlishús
211
993 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Frostafold 30
Bílskúr
Skoða eignina Frostafold 30
Frostafold 30
112 Reykjavík
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
744 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin