Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2025

Reynidalur 2 (203)

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
84.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
60.900.000 kr.
Fermetraverð
721.564 kr./m2
Fasteignamat
56.450.000 kr.
Brunabótamat
50.400.000 kr.
Mynd af Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2538045
Landnúmer
210432
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
5,11
Upphitun
Hitaveita/ Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Reynidalur 2, íbúð 203, 260 Reykjanesbær

Ný þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í Dalshverfi. Sameiginlegur inngangur, svalir og sérgeymsla á jarðhæð íbúðar. Afhendist fullbúin að innan sem utan án gólfefna.

Sýnum samdægurs, bókaðu skoðun hér.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Um verkefnið – Reynidalur 2
Reynidalur 2 er 19 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum með lyftu í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. Í boði eru 2–4 herbergja íbúðir og eignirnar eru lausar við kaupsamning. Húsið er reist úr einangruðum forsteyptum einingum. Á jarðhæð eru fjórar íbúðir með sérinngangi og sérafnotareiti, sérgeymslum, hjólageymslu og tæknirými. Á annarri hæð eru átta íbúðir og á þriðju hæð sjö íbúðir.
Smelltu hér til að sjá nánar um allar eignirnar.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 84.4 m², þar af er íbúðarrými 76.6 m² og sérgeymsla í kjallara hússins 7,8 m².
Eign merkt 02-03, fastanúmer 253-8045 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Eignin skilast fullbúin án gólfefna skv. skilalýsingu:

Frágangur innanhúss:
Eldhús
með sérsmíðaðri innréttingu, möguleika á innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni í vinnuhæð og helluborði. Borðplata úr ljósum Acryl-steini með vaski og innfelldri loftlýsingu. Heimilistæki frá AEG.
Baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með glerskilrúmi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í sérsmíðaðri innréttingu. Gólf og veggir flísalagðir, sturta flísalögð með innfelldu niðurfalli og innfelldri lýsingu. Blöndunartæki Grohe.
Gólfefni afhent tilbúin undir lagningu. Baðherbergi og þvottarými flísalögð 60×60 á gólfi og 60×60 á veggjum í ljósgráum lit, flísar frá Álfaborg.
Innréttingar og fataskápar sérsmíðaðar frá 3 AM í sama lit. Innihurðir frá 3 AM með innfelldum lömum og segullæsingum, í sama lit og innréttingar.

Byggingarlýsing:
Gluggar
eru ál/timbur frá Ideal Combi með tvöföldu K-gleri. Þak er steypt með þakeinangrun og dúkklæðningu og undir þurrými er tvöfaldur ábræddur tjörudúkur. Svalir snúa til suðurs, hafa steypt yfirborð og stálhandrið klætt áli. Sérafnotareitir á jarðhæð eru hellulagðir og á svölum og við sérafnotareiti er útiljós og rafmagnstengill. Innveggir eru forsteyptir, múraðir og málaðir; léttir veggir eru úr blikkstoðum og klæddir með tvöföldu gifsi báðum megin. Votrými eru með votrýmismálningu og flísum þar sem við á. Raflagnir eru fullfrágengnar samkvæmt teikningum og ljósleiðari er leiddur að smáspennutöflu hverrar íbúðar. Húsið er hitað með ofnakerfi. Loftræsting er náttúruleg með opnanlegum gluggum og hurðum, vélræn í votrýmum og gluggalausum rýmum, þrýstiventill er í hverri íbúð og loftskiptikerfi í geymslum.

Lóð, aðkoma og sameign:
Bílastæði eru malbikuð og stéttar hellulagðar að húsinu. Stéttar og stæði fatlaðra eru með snjóbræðslu og lóð er að öðru leyti með grasi. Samtals eru 31 malbikuð bílastæði á lóðinni, þar af tvö fyrir hreyfihamlaða. Lagnaleiðir fyrir rafhleðslustöðvar eru lagðar að stæðum. Flísalagt anddyri með póstkössum. Teppi á stigum og stigapöllum. Á jarðhæð/kjallara er sameign með máluðu gólfi, hjóla- og vagnageymsla með máluðum gólfum. Ruslaskýli er á lóð.

Fyrir nánari lýsingu vísast til skilalýsingar byggingaraðila.

Myndir eru til viðmiðunar og geta verið úr sambærilegri íbúð, en endurspegla ekki endilega þessa tilteknu íbúð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/02/202656.450.000 kr.58.900.000 kr.84.4 m2697.867 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lyngmóar 7
Opið hús:20. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lyngmóar 7
Lyngmóar 7
210 Garðabær
62.9 m2
Fjölbýlishús
211
952 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 11c
Skoða eignina Jöfursbás 11c
Jöfursbás 11c
112 Reykjavík
64.3 m2
Fjölbýlishús
413
902 þ.kr./m2
57.990.000 kr.
Skoða eignina Fífuland 19
Skoða eignina Fífuland 19
Fífuland 19
800 Selfoss
100.9 m2
Raðhús
413
682 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 407
Opið hús:21. apríl kl 16:30-17:00
Strandgata 26 íb. 407
220 Hafnarfjörður
126.9 m2
Fjölbýlishús
312
1181 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin