Smáratún 1 - Stórt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr - Stærð 311,2 m².
Mikið og gott útsýni er frá húsinu og útbúin hefur verið leiguíbúð á neðri hæð.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Efri hæð: Forstofa, eldhús, borðstofa, stofa, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Neðri hæð: Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur.
Efri hæð:
Forstofa er með opnu fatahengi og flísar á gólfi.
Eldhús er með nýlegri mjög rúmgóðri innréttingu, með uppþvottavél í vinnuhæð, spanhelluborði og stæði fyrir tvo ísskápa. Flísar eru á gólfi.
Borðstofa/stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar eru flísar á gólfi og góðir gluggar til tveggja átta. Gengið er út á steyptar svalir er snúa til vesturs.
Svefnherbergin eru fjögur, góður fataskápur er í hjónaherbergi. Parket er á gólfi þriggja og flísar á einu.
Baðherbergi er afar snyrtilega uppgert, þar er ljós innrétting, walk in sturta, upphengt klósett, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Flísar eru á gólfi en Fibo plötur á veggjum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Snyrting er við forstofu, þar er innrétting og klósett. Flísar eru á gólfum.
Neðri hæð:
Íbúð skiptist upp með eftirfarandi hætti:
Forstofa er með opnu fatahengi og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með eldri en snyrtilegri innréttingu og flísum á milli skápa. Ágætur borðkrókur er í eldhúsi. Dúkur er á gólfi
Stofa er með harðparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Útengt er úr stofu á timburverönd sem snýr til suðurs.
Svefnherbergin eru tvö, og eru þau með harðparketi á gólfi. Fataskápur er í öðru herbergjanna.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, walk-in sturtu, upphengdu klósetti, handklæðaofni og glugga. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla er innan íbúðar.
-
Snyrting, þar er vaskur og klósett, gólf er lakkað.
Þvottahús er með lökkuðu gólfi. Sér inngangur er í þvottahús.
Geymsla er í dag nýtt sem nuddherbergi en hún er afar rúmgóð og snyrtileg.
Bílskúr er með rafdrifinni hurð, undir bílskúr er útgrafið rými sem býður uppá möguleika, sér inngangur er í það rými af jarðhæð.
Annað:
- Hellulagt vestan og austan við hús, snjóbræðsla.
- Rúmgóður sólpallur sunnan við húsið.
- Gólfhiti undir flísum á efri hæð og á baðherbergi neðri hæðar.
- 2023 Eldhúsinnrétting endurnýjuð.
- 2020 Baðherbergið á efri hæð endurnýjað
- 2018 Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað.
- 2015 Ljósleiðari tekinn inn og kaldavatnstenging endurnýjuð frá götu og inní hús.
- 2011 Húsið klætt að utan.
- 2010 Gluggar endurnýjaðir.
- Rafmagn og aðrar lagnir hafa verið endurnýjaðar að all mestu leyti.
- Eigendur skoða skipti á minni eign inn á Akureyri.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.