HVAMMABRAUT 14 - HAFNARFIRÐI
- BÓKIÐ SKOÐUN
- ATLI 699-5080 - GUÐNÝ 866-7070 EÐA Á STOFAN@STOFANFASTEIGNIR.IS
STOFAN FASTEIGNASALA kynnir rúmgóða og vel skipulagða 5 herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð við Hvammabraut 14, Hafnarfirði.
Íbúðin er með stórum suðvestur svölum og afar fallegu útsýni. Hér um að ræða fallega og skemmtilega íbúð í rótgrónu og vinsælu hverfi í Hafnarfirði.
Eignin er 118,4 m² skv. fasteignaskrá HMS, með sérgeymslu í kjallara og sameiginlegri bílageymslu. Ris er undir súð og er nýtanlegur gólflötur því stærri en mældir fermetrar gefa til kynna. Hluti þeirra er m.a nýttur undir geymslu.Um er að ræða íbúð á 3. hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1987. Engin lyfta er í húsinu, en stigagangur er snyrtilegur og sameign vel við haldið, tvö húsfélög eru starfandi annað fyrir stigaganginn og hitt fyrir allt húsið. Næg bílastæði eru við húsið og einnig er sameiginleg bílgeymsla í kjallara.
- Efsta hæð
- Útsýni
- 4 svefnherbergi
- Suðvestur svalir
- Farið verður í endurbætur utanhúss í vor (nánar listað hér neðar)
Gengið er inn í
forstofu með fatahengi.
Eldhús og stofa mynda opið alrými með gluggum í tvær áttir sem gerir íbúðina bjarta. Gegnheilt viðarparket er á stofugólfi og nýjar korkflísar á eldhúsi. Eldhús var endurskipulagt árið 2023 og er með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Keramik helluborði og bakarofni, tengi fyrir uppþvottavél. Útgengi er úr stofu á stórar suðvestur svalir þar sem sólar nýtur langt fram á kvöld og útsýnið setur sterkan svip á eignina.
Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, gegnheilt viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi er úmgott og bjart með gluggum að svölum. Gegnheilt viðarparket á gólfi.
Gengið er upp hringstiga í alrými á efri hæð íbúðar.
Hol (efri hæð): rýmið fyrir framan herbergi í risi er í dag nýtt sem vinnuaðstaða.
Svefnherbergi er rúmgott og nýtist vel sem barnaherbergi eða gestaherbergi. Nýjir Velux gluggar.
Sjónvarpsstofa/fjölskylduherbergi í risi er Í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi en hentar fullkomlega sem rúmgott fjórða svefnherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, salerni og baðkar með sturtu, vaskinnrétting, tengi fyrir þvottavél og innréting/skápur fyrir ofan.
Sameiginlegt
þvottahús er í stigagangi.
Sérgeymsla íbúðar, 6.6m² er í kjallara.
Farið verður í endurbætur untanhúss í vor þar sem skipt verður um glugga og gler. Einnig verður húsið múrviðgert og málað og tréverk á svölum endurnýjað.
Gluggar og gler innan íbúðar: skipt verður um glugga og gler í eldhúsi og hjónaherbergi og stóru glerin í stofunni.Endurbætur skv.seljanda:
Parket slípað og lakkað 2023
Skipt um gler í barnaherbergi neðri hæðar 2023
Eldhússkipulagi breytt og bætt við skápum 2023
Baðherbergi breytt og þvottavél komið fyrir 2025
Nýir Velux þakgluggar á efri hæð 2024
Nýtt gólfefni á eldhúsi 2025
Rafmagnsinnlagnarefni endurnýjað 2025 ásamt öryggjum í töflu innan íbúðar.
Skipt um framhlið á inngangi í sameign í heild sinni, gluggar og hurð 2025
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is og Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.