Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Laugavegur 76

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
74.9 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.000.000 kr.
Fermetraverð
867.824 kr./m2
Fasteignamat
63.550.000 kr.
Brunabótamat
30.330.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1936
2. hæð af 4
Geymsla 6.8m2
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2005413
Landnúmer
101611
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
Þarfnast endurnýjunnar
Þak
Sjá ástandsskýrslu
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Lóð
11,87
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ástandsskýrsla var gerð 2018. Búið er að framkvæma nokkuð síðustu ár. Kominn er tími á endurnýjun glugga á suðurhlið og er verið að leita tilboða í þáframkvæmd. Geymslur á suðurlóð eru í lélegu ástandi. 
Hússjóður á inneign kr 10.180.000 til framkvæmda á húsi, yfirlýsing dagsett maí 2026.
Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Laugavegur 76 í 101 Reykjavík. Bjarta og sjarmerandi tveggja til þriggja herbergja íbúð í góðri staðsetningu í hjarta miðbæjarins. Tvær stofur, gott svefnherbergi, endurnýjað eldhús og baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar. Mikil lofthæð, harðviðargólf og falleg gluggasetning. Eignin er öll nýmáluð. Góður hússjóður fylgir eigninni en til stendur að skipta um glugga á suðurhlið hússins á næstunni. Geymsluskúr á baklóð fylgir íbúðinni. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

NÁNARI LÝSING: 
Í húsinu eru sex íbúðir og tvö verslunarrými á jarðhæð.
Komið er af gangi inn í flísalagt hol. Úr holi er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar. 
Stofurnar eru bjartar og rúmgóðar og flæða saman með eldhúsi. Falleg gluggasetning, aukin lofthæð og harðviður á gólfum.
Svefnherbergi: Rúmgott, tveir fallegir gluggar sem snúa í garð, harðviður á gólfi.
Eldhús: Góð endurnýjuð innrétting, eldavél og innbyggður ísskápur, harðviður á gólfi.
Baðherbergi: Góður sturtuklefi, skápur með handlaug, flísar á gólfi.
Þvottaherbergi/geymsla er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Íbúðin er öll nýmáluð og gluggar á norðurhlið yfirfarnir og málaðir. Ofnar hafa verið endurnýjaðir.


Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1928
6.8 m2
Fasteignanúmer
2005413
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
780.000 kr.

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallgerðargata 11
Efsta hæð
Hallgerðargata 11
105 Reykjavík
91.4 m2
Fjölbýlishús
312
984 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Háteigsvegur 23
Skoða eignina Háteigsvegur 23
Háteigsvegur 23
105 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
123
827 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Keilugrandi 4
Skoða eignina Keilugrandi 4
Keilugrandi 4
107 Reykjavík
57.3 m2
Fjölbýlishús
211
1045 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Lokastígur 7
IMG_7218.jpg
Skoða eignina Lokastígur 7
Lokastígur 7
101 Reykjavík
53.8 m2
Fjölbýlishús
211
928 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin