Fasteignasalan TORG Kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í Góðu fjölbýlishúsi að Vinastræti 12 í Urriðaholti, Garðabæ. Íbúðin er skráð 73,3 fm. og skiptist í forstofu, svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými sem rúmar stofu, borðstofu og eldhús. Frá stofu er útgengt út á svalir sem snúa til suðurs. Eigninni fylgir
sérmerkt bílastæði með hleðslustöð í lokuðum og upphituðum bílakjallara ásamt sérgeymslu í sameign. Eignin er í fallegu fjölbýlishúsi sem byggt var 2019 af ÞG VERK. Húsið er vel staðsett ofarlega í Urriðarholtinu í grennd Urriðaholtsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Í hverfinu er veitingahús, kaffihús og sjálfvirk matvöruverslun. Í næsta nágrenni eru fleiri verslanir og þjónusta, golfvöllur, útivistarsvæði í Heiðmörk og Vífilsstaðavatn. Allar nánari upplýsingar veitir
Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is
Nánari lýsing:Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með harðparketi á gólfi og loftháum tvöföldum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi er af vandaðri gerð frá GKS, framleiddar af Nobilia í Þýskalandi. Bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Eyja með góðu vinnu- og barstólaplássi, helluborði og háf þar fyrir ofan. Harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru í opnu og björtu alrými með stórum gluggum og með harðparketi á gólfi. Útgengt er á suðursvalir.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og hvítur fimmfaldur lofthár fataskápur.
Baðherbergi: Grá falleg innrétting með handlaug og speglaskáp með lýsingu. Upphengt salerni og sturta með hertu gleri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Geymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla á jarðhæð.
Garður: Stór og fallegur sameiginlegur garður. Góð aðkoma er að húsinu.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði er í bílakjallara og búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði. borgarinnar. Í göngufæri er Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Samkvæmt vef Garðabæjar: Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities. Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortna náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir.
Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á góðum stað í Urriðaholti Garðabæ. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem verslanir og skóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir
Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.