ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Bogabraut 951, 262 Reykjanesbær, birt stærð 184,4 fm.Um er að ræða fallega og vel skipulagða 5 herbergja íbúð á Ásbrú. Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi, stórt og bjart alrými sem tengir saman stofu og eldhús, búrskáp inn af eldhúsi, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, þrjú rúmgóð barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu. Þá fylgir leyfi fyrir sólpalli.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurjón Rúnarsson löggiltur fasteignasali, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Haukur Andreasson löggiltur fasteignasali, í síma 866-9954, tölvupóstur haukur@allt.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa hefur flísar á gólfi og rúmgóðan skáp.
Eldhús hefur parket á gólfi, hvíta innréttingu með bakarofni, helluborði og vaski. Gott borðpláss.
Búrskápur inn af eldhúsi er 2,4 fm.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt þar sem leyfi er fyrir pallasmíði.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi, góðu skápaplássi og baðherbergi inn af.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi, dúkur á gólfi, hvít innrétting með handlaug og spegli, salerni og baðkari/sturtu.
Barnaherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, hvíta innréttingu með handlaug og spegli, salerni og baðkari/sturtu.
Þvottahús er með dúk á gólfi, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt hvítri innréttingu fyrir ofan.
Sérgeymsla í sameign, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.