Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna: Kórsali 5 – rúmgóða 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi, tveimur baðherbergjum og sér afnotarétti á lóð.Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum, tveimur stofum og tveimur baðherbergjum. Á sameign er hleðslustöð fyrir tvo bíla. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á að útbúa fjórða svefnherbergið á neðri hæð.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum, meðal annars hafa gólfefni og allar innihurðir verið endurnýjað, nýjar innréttingar settar í forstofu og þvottahús, gluggar yfirfarnir og endurbættir ásamt því að dren hefur verið lagfært og útveggur einangraður. Þá standa yfir lyftuskipti í húsinu árið 2026. Kostnaður á seljanda.
Nánari lýsing eignarEfri hæð:
Forstofa: Sérinngangur í íbúðina. Nýjar flísar á gólfi og ný innrétting frá árinu 2026.
Eldhús: Eldhús með borðkrók. Flísar á milli efri og neðriskápa. Á einni eldhúsmynd hefur tvöfaldur ísskápur sem er í dag í eldhúsi verið fjarlægður, einfaldur ísskápur passar við innréttingu.
Stofa og borðstofa: Rúmgott alrými með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu.
Svefnherbergi: Svefnherbergi á efri hæð.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, baðinnréttingu, vaski og upphengdu salerni. Endurbætur voru gerðar á baðherberginu árin 2016 og 2017.
Þvottahús: Þvottahús með nýjum innréttingum og flísum á gólfi frá árinu 2026.
Neðri hæð:
Sjónvarpsstofa / alrými: Rúmgóð stofa sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Veggur stofu á teikningum er léttur(kíttaður ofan á parket), hægt að fjarlægja og nýta sem eitt rými.Svefnherbergi I: Með parket á gólfum.
Svefnherbergi II: Með parket á gólfum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtu og baðkari. Endurbætur voru gerðar árið 2016, meðal annars á flísum, innréttingu og sturtuaðstöðu.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er innan íbúðar.
Útgengi er í sameign frá neðri hæð.Nánar um endurbætur
2026- Nýjar flísar á gólf í forstofu og þvottahúsi.
- Nýjar innréttingar í þvottahúsi og anddyri.
- Gluggar hússins málaðir.
- Unnið er að endurnýjun lyftu í húsinu.
2025- Skipt um gler og opnanleg gluggafög þar sem þörf var á.
2024- Gluggar og gler yfirfarin og gluggakarmar þéttir.
2021- Dren lagfært og einangrun sett á útvegg við íbúðina.
2019- Harðparket frá Harðviðarvali lagt á gólf.
- Allar innihurðir endurnýjaðar með hurðum frá Birgisson.
2016–2017- Endurbætur á báðum baðherbergjum, meðal annars endurnýjun innréttinga, hreinlætistækja, blöndunartækja og sturtuaðstöðu.
- Upphengt salerni sett á baðherbergi efri hæðar.
2013–2015- Grindverk sett utan um sérafnotareit við inngang árin 2013–2014.
- Screen-gardínur frá Sólar gluggatjöldum settar upp árin 2014–2015.
Lóð og sameignÍbúðinni fylgir sér afnotaréttur á lóð þar sem komið hefur verið fyrir grindverki við inngang. Í sameign hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Unnið er að endurnýjun lyftu í húsinu árið 2026.
Fyrir nánari upplýsingar eða bókun á skoðun hafið samband við Jón G. Sandholt, löggiltan fasteignasala, í síma 777-2288 eða á netfangið jon@helgafellfasteignasala.is.