Kasa fasteignir 461-2010.
Tröllagil 14 íbúð 403. Björt og vel skipulögð 3 herbergja 83,7 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi ásamt sér stæði í bílgeymslu. Svalir eru til vesturs með frábæru útsýni.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Sameiginlegt þvotthús á hæðinni sem þrjár íbúðir deila. Einnig er sér geymsla í sameign ásamt öðrum sameiginlegum rýmum.
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfum og fataskápum.
Eldhús er með flísum á gólfi, innrétting með flísum milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu, pláss er fyrir eldhúsborð í eldhúsi.
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi. Horngluggi til norðurs er á rýminu sem gefur frábært útsýni. Útgengi út á svalir til vesturs úr stofu.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting við vask, sturtuklefi með hurðum, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Þvottahús er sameiginlegt og er á sömu hæð og íbúðin, þrjár íbúðir deila þvottahúsi og er hver með sína vél, innrétting með vask og útgengi út á litlar svalir úr þvottahúsi.
Geymslurnar eru tvær, önnur innan íbúðar og hin í sameignarrými.
- Frábært útsýni
- Nýr mynddyrasími
- Skipt um gler 2016
- Húsið málað að utan 2023
- Sér rúmgott bílastæði í bílgeymslu
- Stutt í leik- og grunnskóla, verslun og ýmsa aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.