NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is
* 42,1 fm þaksvalir
* 58,9 fm bílgeymsla
* stæði fyrir framan bílgeymslu
* tvö baðherbergi
* þvottaherbergi
* sjónvarpsherbergi
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstaklega vandaðar og vel hannaðar íbúðir við Jöfursbás 3c, Reykjavík - íbúð 0508 er 3.herbergja 171,4 fm þakíbúð á fimmtu og efstu hæð . Íbúðarrýmið sjált 112,5 fm, Bílgeymslan er 58,9 fm . Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum. Þaksvalir út frá stofu með útsýni til sjávar. Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 320
Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Harðviðarval og eldhústæki frá AEG.
* sjávarútsýni
* aukin lofthæð
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi
Nánari lýsing íbúðar
Forstofa rúmgóð með fataskáp
Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts. Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með quartz stein á borðplötu.
Stofa með góðum glugga og útgengt á þaksvalir.
Sjónvarpsstofa með góðum glugga
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja. Vönduð innrétting með quartz borðplötu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónasvítan er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Baðherbergi er inn af hjónaherbergi
Þvottahús með flísalögðu gólfi og innréttingu
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is
Íbúðirnar í húsinu eru samtals 19 talsins, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 54,6 fm-165,9 m2
// VILDARKORT LINDAR // sem allir viðskiptavinir Lindar fá afhent við kaupsamning
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.
Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Strönd þar sem hægt er að fara á í fargufu og sæþotuleiga.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is