Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Hlíðarhjalli 40

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
116.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
769.692 kr./m2
Brunabótamat
58.910.000 kr.
Byggt 1988
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2061857
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Glæsileg 3ja herb. íbúð með bílskúr í suðurhlíðum Kópavogs. Ný svalalokun. Stór stofa með mikið útsýni. IMIROX fjármögnun í boði.

Glæsileg 3ja herb. íbúð með endabílskúr í suðurhlíðum Kópavogs. Ný svalalokun. Mikið útsýni. Íbúðin er laus frá 1. desember. 

 

Forstofa opin með stofu. Stór og björt stofa með glæsilegu útsýni í suður yfir Kópavogsdalinn. Möguleiki á að fjölga um 1 herbergi í stofu. Stórt hjónaherbergi með miklu skápaplássi. Útgengi á svalir úr hjónaherbergi. Stórt svefnherbergi með skáp.  Baðherbergi með baði. Gluggi í baðherbergi. Nýlegt parket og nýlegar innihurðir. Elhús með miklu skápaplássi. Inni af eldhúsi er þvottahús og geymsla sem rúmar þvottavél, þurrkara, frystikistu og auk þess mikið skápapláss. 

 

Nýlegt parket á gólfum, en flísar í forstofu, eldhúsi, þvottahúsi/geymslu og baðherbergi. Ofnakerfi íbúðarinnar er nýlega endurnýjað. 

 

Geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni. Geymslan er björt með góðri lýsingu og hillukerfi á 3 hliðar upp i loft - mikið geymslupláss. Ennfremur er hjóla- og vagnageymsla í sameign, ásamt þurrkherbergi. 

 

Bílskúrinn er stór endabílskúr með glugga og opnanlegu fagi, rafmagnsopnun á bílskúrshurð og inngönguhurð í bílskúrshurðinni. 

 

Sameignin er í mjög góðu og reglulegu viðhaldi. Steinn, þak og þakkantur málað með reglulegu millibili og skipt um rennur eftir þörfum. Leiksvæði í garði. Einkastæði framan við bílskúr og sameiginleg bílastæði á lóð. Stutt í skóla, leikskóla, Smáralind, Smáratorg, og fleiri þjónustukjarna á svæðinu. Mikið um göngustíga í hverfinu sem liggja niður með Kópavogslæk að sjó.

 

Fasteignin er skráð 116,80 fermetrar, þar af er bílskúrinn 24,2 fermetrar. Fasteignamat 2026: kr. 80.500.000.

 

Óskað er eftir tilboðum í fasteignina. Seljandi hefur áhuga á eignaskiptum, fyrir stærri íbúð í fjölbýli með bílskúr á höfuðborgarsvæðinu.

 

Fjármögnun: IMIROX fjármögnun til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is. 

 

Frekari upplýsingar um þessa fasteign veitir IMIROX í síma 777-2500 eða í tölvupósti info@imirox.com. 

 

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/05/200719.880.000 kr.25.900.000 kr.116.8 m2221.746 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólatröð 8
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Skólatröð 8
Skólatröð 8
200 Kópavogur
117,4 m2
Fjölbýlishús
422
1277 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10C 101
Hleðslustöð
Opið hús:01. nóv. kl 15:15-16:00
Skoða eignina Eskiás 10C 101
Eskiás 10C 101
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
413
942 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10E 104
Hleðslustöð
Opið hús:01. nóv. kl 15:15-16:00
Skoða eignina Eskiás 10E 104
Eskiás 10E 104
210 Garðabær
115,9 m2
Fjölbýlishús
413
905 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 21
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 21
Efstaleiti 21
103 Reykjavík
99,8 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 90.350.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin