Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna vandað og mjög snyrtilegt 170 fm. endabil í atvinnuhúsnæði við Bugðufljót 15P í Mosfellsbæ, en þar af eru 59,9 fm. samþykkt milliloft. Lofthæð er frá u.þ.b. 5 metrum og upp í tæpa 10 metra þar sem hún er hæst. Húsið er fullfrágengið með malbikaðri lóð og sérmerktum bílastæðum og útisvæði. Stórt athafnasvæði.ENDILEGA BÓKIÐ SKOÐUN - REYNT ER AÐ SÝNA EIGNINA SAMDÆGURS.Lýsing eignar: Innkeyrsluhurð er 4,3 metra há með sjáfvirkri hurðaopnun.
Timburstigi með handriði milli hæða.
Geymslusvæði yfir gangi sem liggur í gegnum húsið.
Húsið er límtréshús frá LímtréVírnet ehf., byggt árið 2023, klætt steinullar-yleiningum sem halda mjög góðum hita á húsinu.
Húsið er byggt á steinsteyptum undirstoðum. Gólf er steinsteypt með epoxý (Vespox EW-V) yfirlagi. Límtré er í burðarvirki veggja og þaks.
Hvítir gluggar og hurðir í útveggjum eru úr plasti.
Bílaplan er malbikað með niðurföllum, olíuskiljum og sorpaðstöðu.
Baðherbergi með sturtu, innréttingu, salerni og ræstivaski.
Aðgengi og lóð: Við húsið eru alls 48 bílastæði, en þrjú bílastæði tilheyra hverju bili. Auk þess tilheyrir hverju bili sérmerkt svæði út að lóðamörkum, að fráskildri gegnumkeyrslu, ásamt góðu sameiginlegu svæði.
Búið er að gera upp vsk. kvöð sem áhvílandi var á eigninni.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is