RE/MAX og Guðbjörg Guðmudsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna: Sérlega fallegt og vandað sumar/heilsárshús í Landsveit.
Húsið stendur á 13.000 fm eignarlóð (1,3 hektari) þaðan sem óhindrað útsýni er m.a. að Búrfelli, Heklu og Eyjafjallajökli.
Einstök staðsetning, mikil fjallasýn og nálægð við hálendi Íslands en þó aðeins rúmlega klukkutíma akstur frá Reykjavík.Smellið hér til að bóka skoðun eða fá nánari upplýsingarEignin er samtals 80,5 fm. og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi og þvottahús. að auki er geymsluskúr á lóðinni.
Nánari lýsing:Anddyri: Rúmgott anddyri með góðu fatahengi og skápum. Flísar á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús tengjast og mynda gott alrými. Parket á gólfi og gólfhiti.
Stofa er rúmgóð með útgengi út á pall, mikil lofthæð er í stofu. Úr
borðstofu er einnig útgengi út á pall.
í
eldhúsi er falleg innrétting, innbyggð uppþvottavél er í innréttingu.
Hjónaherbergi er með skáp parketi á gólfi og gólfhita.
Tvö önnur svefnherbergi eru í húsinu, annað með fataskáp. Parket á gólfi og gólfhiti.
Svefnloft er yfir stórum hluta hússins og er gluggi á gafli.
Baðherbergi flísalagt, góður sturtuklefi, vegghengt salerni og hiti í gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottahús er inn af baðherbergi, hiti í gólfi og gluggi með opnanlegu fagi.
Stór timburpallur umlykur húsið sem er vandað timburhús er stendur á steyptum grunni og -plötu. Á palli er rafmagnspottur sem notaður hefur verið árið um kring.
Gólfhiti er í öllum rýmum hússins og hitastýring í hverju rými fyrir sig.
Húsið er norskt einingarhús byggt árið 2008 og stendur á 1,3 hektara eignarlóð.
Landið er kjarri vaxið og býður upp á mikla útivist, merktar gönguleiðir eru á svæðinu og má m.a. ganga að Ytri Rangá.
Aðrar náttúruperlur svo sem Landmannalaugar, Hrafntinnusker og Veiðivötn eru skammt frá. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg Guðmudsdóttir , Löggiltur fasteignasali, gg@remax.is eða í síma 899 5533.Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá, við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.