Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu byggingarrétt undir einbýlishús í Garðabæ. Hnoðraholt suður - Háholtið. Suðurhlíðin með útsýni yfir golfvöll GKG og Heiðmörk. Selholt 10 - Einbýlishúsalóð undir einbýlishús á tveimur hæðum. Stærð lóðar er 574,0 fermetrar - hámarks byggingarmagn 360 fermetrar.
Lágmarksverð er kr. 33.000.000.- skrifa krónur þrjátíu og þrjár milljónir 00/100 .-Skilmálar þessir um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti - háholti - suður byggja á úthlutunarreglum sem samþykktar voru á fundi bæjarráðs Garðabæjar 13. júní 2023.
Deiliskipulag fyrir Hnoðraholt suður - háholt var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 5. febrúar 2026 og staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 18. júní 2026.
Háholt Hnoðraholts - Deiliskipulag: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/488Tilboð í byggingarrétt lóðanna þarf að berast fyrir kl. 12.00 föstudaginn 30. október 2026 og gilda til kl. 12.00 föstudaginn 6. nóvember 2026. Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl. 08.00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.
Einstaklingar og lögaðilar geta lagt fram tilboð í byggingarrétt lóða. Gatnagerðargjöld og byggingarréttargjald:
Gatnagerðargjöld af lóðunum eru samkvæmt gjaldskrá Garðabæjar sem gildir hverju sinni. Tilboðsgjafar gera tilboð í byggingarrétt lóðanna. Byggingarréttargjald innifelur ekki heimæðargjöld veitustofnana, byggingarleyfisgjald, skipulagsgjald, úttektargjöld og önnur slík gjöld. Lóðarhafi greiðir umrædd gjöld í samræmi við gjaldskrár sem gilda hverju sinni.
Lágmarksgatnagerðargjöld af einbýlishúsum, par- og raðhúsum og fjölbýlishúsum:
Einbýlishús 240 fm. kr. 11.683.402
Par- og raðhús 190 fm. kr. 7.367.188
Viðbótargatnagerðargjöld eru greidd af umframfermetrum.
Ofangreindar fjárhæðir breytast í samræmi við byggingarvísitölu m.v. grunnvísitölu í september 2026, 129,6 stig.
Sjá nánari skilmála/upplýsingar í úthlutunarskilmálum Garðabæjar.Nánari upplýsingar um skilmála úthlutunar má sjá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf.Allar nánari upplýsingar og gögn veitt á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is