Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna.
Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.
Heimasíða OrkureitsinsOrkureitur - Grensásvegur 2, íbúð
705 er 4ra herbergja
130,1 fm með sérmerktu stæði
B048. Íbúðin er á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og er á
7. hæðinni. Sérgeymsla 13,8 fm. Svalir til austurs.
Flæði íbúðar:
Komið inní
anddyri með mjög rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Rennihurð úr baðherbergi í þvottarými.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataskápum sem eru 3 metrar að breidd.
Svefnherbergi II er 8,6 fm að innra máli og er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Innréttingaþema er Safír Premium. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Alrýmið er með gluggum að mestu til norðurs og frábæru útsýni, að auki eru gluggar til austurs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru rúmlega 7 fm að stærð. Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað sjónvarpshols sem er í enda stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Afhending íbúðanna: Afhending verður í júní/júlí
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: dagrun@betristofan.is
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is