Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2026

Valshlíð 3 - 405

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
78.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.925.000 kr.
Fermetraverð
843.031 kr./m2
Fasteignamat
73.600.000 kr.
Brunabótamat
46.150.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2532686
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Lóðarréttindi
Leigulóð
Verð miðast við 75% kaup

Valshlíð 3 – íbúð 405, 102 Reykjavík



Glæsileg og einstaklega vel skipulögð 3ja herbergja sýningaríbúð á 4. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Íbúðin er björt og falleg með gólfsíðum gluggum, rúmgóðu alrými og útgengi á vestursvalir með fallegu útsýni. Um er að ræða eina af sýningaríbúðum Valshlíðar 3 og miðað við sameignarlausn S8 er 75% verð íbúðarinnar 65.925.000kr.

Skráð stærð skv. 78,2 fm, þar af 6,4 fm geymsla í kjallara.

Helstu atriði
  • Sýningaríbúð í Valshlíð 3.
  • 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með vestursvölum og útsýni.
  • 75% verð í sameignarlausn: 65.925.000 kr.
  • Tvö svefnherbergi, fallegt alrými og innréttingarþema Hlíð 1.

Nánari lýsing
Valshlíð 3 – íbúð 405 er glæsileg og björt útsýnisíbúð þar sem vandað efnisval og vel útfært skipulag njóta sín afar vel. Komið er inn í anddyri með góðum fataskápum og þaðan inn í rúmgott alrými þar sem eldhús og stofa/borðstofa mynda fallega og samræmda heild. Gólfsíðir gluggar og útgengi á rúmgóðar vestursvalir gefa rýminu létt yfirbragð, mikla birtu og fallegt útsýni. Eldhúsið er sérlega smekklegt með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttum quartz-steini og vönduðum Siemens raftækjum. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum, og baðherbergið er vandað með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Íbúðin er fullbúin og er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu, en sem sýningaríbúð gefur hún jafnframt einstaklega góða mynd af rýminu, skipulaginu og þeim gæðum sem einkenna Hlíðarhorn.

Fullt verð á íbúðinni er : 87.900.000kr

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (7)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásbrekka 5
Opið hús:13. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ásbrekka 5
Ásbrekka 5
225 Garðabær
95.9 m2
Fjölbýlishús
312
802 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 11
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 11
Efstaleiti 11
103 Reykjavík
100.3 m2
Fjölbýlishús
312
896 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturhús 20
Bílskúr
Skoða eignina Vesturhús 20
Vesturhús 20
112 Reykjavík
247.6 m2
Fjölbýlishús
614
565 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturhús 20
Skoða eignina Vesturhús 20
Vesturhús 20
112 Reykjavík
90.9 m2
Fjölbýlishús
312
769 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin