Steinahlíð 5j - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð á tveimur hæðum í Glerárhverfi - Stærð 129,2 m².
Eignin verður sýnd á opnu húsi miðvikudaginn 11.9 kl 16.15 til 17.00 og einnig fimmtudaginn 12.9 kl 12.15-13.00.Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma
466-1600 eða á netfangið siggithrastar@kaupa.is
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti;
Neðri hæð 64,6 m²: Forstofa, þvottahús, eldhús, stofa og snyrting.
Efri hæð 64,6 m²: Sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa, þar er ljóst harðparket á gólfi, útidyrahurð hefur verið endurnýjuð.
Eldhús er með nýlegri innréttingu, með innbyggðri uppþvottavél, stæði fyrir ísskáp, bakaraofni í vinnuhæð, helluborði og góðum tækjaskáp. Flísar eru á milli skápa. Góður borðkrókur með glugga til austurs. Ljóst harðparket er á gólfi.
Stofa er með ljósu harðparketi á gólfi, stórum suður gluggum og hurð út á timbur verönd með heitum potti/skel.
Svefnherbergin eru þrjú ljóst harð parket er á gólfum í öllum herbergjum og fataskápar í tveimur þeirra, úr hjónaherbergi er hurð út á steyptar suður svalir.
Sjónvarpshol á efri hæð er með ljósu harð parketi á gólfi og glugga til austurs.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, sprautulakkaðri innréttingu, wc, baðkar með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Snyrting á neðri hæð hefur verið endunýjuð. Þar er ljóst parket, upphengt wc, grá innrétting og handlaug. Blöndunartæki fyrir heitapott eru í innréttingunni.
Þvottahús er með flísum á gólfi og nýlegri hvítri innréttingu með vaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, opnanlegur gluggi. Þvottahús nýtist sem annar inngangur inn í íbúðina, endurnýjuð útidyrahurð.
Sér
geymsla er í kjallara auk sameiginlegs rýmis.
Annað:- Búið er að endurnýja rafmagnstengla.
- Hluti af innihurðum hafa verið endurnýjaðar.
- Gler hefur verið endurnýjað að mestu leyti.
- Húsið hefur verið múrviðgert að utan.
- Nýlegt eldhús.
- Nýlegt quick step harðparket er á flestum rýmum íbúðar.
- Heitur pottur og góð timburverönd.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.