Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir alla húseignina að Mýrum 4, Patreksfirði, nánar tiltekið eign með fastanúmer F2123930, ásamt öllu því sem eigninni fylgir. Einstaklega reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin stendur á 700 fm. gróinni lóð með miklu útsýni til sjávar. Húsið hefur fengið ágætis viðhald verið endurnýjað að hluta, þar á meðal neysluvatnslagnir og baðherbergi.
Rúmgott einbýlishús með sjávarsýn - Heildarstærð: 304 fm
- Bílskúr: 34,4 fm
- Byggingarár: 1976
- Herbergi: 5 svefnherbergi + sjónvarpshol + húsbóndaherbergi
- Staðsetning: Einstaklega falleg staðsetning með útsýni yfir bryggju og fjörðinn
Efri hæðin, 117,6 fm. – Björt og opin hönnun- Flísalögð forstofa með gestasalerni
- Björt og rúmgóð stofa með útgengi á stórar svalir og steinlagðar gluggakistur
- Eldhús einnig með útgengi á svalir, með eikarinnréttingu í U-lagi, borðkrók, helluborði, viftu og aðstöðu fyrir uppþvottavél.
- Parket á holi, stofu og eldhúsi
- Herbergi við inngang sem áður var hluti af stofu – auðvelt að fjarlægja vegg
- Aukainngangur og forstofu-/húsbóndaherbergi inn af eldhúsi
- Gengið niður fallegan timburstiga á neðri hæð
Neðri hæðin, 152 fm. – Góð fjölskylduaðstaða- Glæsilegt sjónvarpshol með arni
- Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum
- Þrjú barnaherbergi (án skápa)
- Þvottahús með útgengi í garð og verönd
- Geymsla/hitakompa með hitatúbu og lagnagrind hússins
- Nýlegt baðherbergi með gólfhita, baðkari og sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni
Bílskúr og aðkoma- 34,4 fm bjartur bílskúr með gluggum, hurðaopnara og gönguhurð
- Vaskur og tveir kranar
- Máluð gólf
- Steypt bílaplan og stétt að inngangi
- Köld geymsla við hlið bílskúrs (upphaflega hönnuð sem ruslatunnuskýli)
Viðhald og ástand- Húsið nýmálað að utan og múrviðgert
- Upprunalegir gluggar í góðu ásigkomulagi
- Neysluvatnslagnir og kerfi endurnýjað ásamt baðherbergi á neðri hæð
- Leigjandi hefur greint frá leka í svalahurð í mjög slæmu veðri
Þetta er eign á besta stað við sjávarsíðuna á Patreksfirði. Hentar vel fyrir stóra fjölskyldu sem leitar að einbýlishúsi með góðu aðgengi, bílskúr, og útsýni.
Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.