FS fasteignir – 571-9992Smárahlíð 22 F, 603 AkureyriFalleg og mikið endurnýjuð 92,4 m
2 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýlishúsi við Smárahlíð á Akureyri.
*** Eign sem vert er að skoða ***Lýsing eignar:Forstofa og hol, harðparketi á gólfi.
Eldhús, nýleg og falleg dökk innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn og Combiofn í vinnuhæð.
Hjónaherbergi, harðparket á gólfi, fataskápur og góður gluggi til suðurs.
Herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur og gluggi til norðurs.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, á gólfi eru dökkar flísar á veggjum eru hvítar baðplötur að hluta og dökkar að hluta, hvít sprautulökkuð innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn og uppengt salerni.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi, hurð út á suðursvalir með fallegu útsýni.
Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi, rúmgóð hvít innrétting með skolvaska, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er sér í sameign á fyrstu hæð hússins.
Annað:- Eignin er mjög björt og mikið endunýjuð árið 2020.
- Ljósleiðari er tilbúinn til notkunar.
- Barnvænt hverfi.
- Stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og Sunnuhlíð verslunarmiðstöð.
Það sem hefur verið framkvæmt undanfarin ár innan og utanhúss:- Harðparket lagt á gólf og flotað undir.
- Innihurðir endurnýjaðar.
- Innrétting í eldhúsi endurnýjuð.
- Rafmangstenglar í íbúð endurnýjaðir.
- Þvottahús endurnýjað og stækkað inn í geymslu.
- Nýr mynddyrasími settur upp.
- Bílaplan endurnýjað.
- Gler og gluggalistar endurnýjaðir.
- Þak yfirfarið og lagað.
- Sameign á jarðhæð máluð.
- Húsið málað að utan árið 2020.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.