Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2024

Spánn La Finca Resort

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
72 m2
Verð
41.000.000 kr.
Fermetraverð
569.444 kr./m2
Fasteignanúmer
9999988
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
MIÐBÆR OG SIGFÚS AÐALSTEINSSON lgf KYNNA MJÖG GLÆSILEGAR NÝJAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ LA FINCA GOLFVÖLLINN.
Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð ný 3ja herb. íbúð á jarðhæð í lyftuhúsi á frábærum stað í stuttu göngufæri frá klúbbhúsi við hinn glæsilega La Finca golfvöll.
Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg íbúð með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og geymslu. 

Nánari lýsing:
Komið er inn í gott alrými og skiptist það í gott eldhús og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Útgengi út á svalir með útgengi upp á rúmgóðar þaksvalir.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og stórum fataskáp. Auk þess annað svefnherbergi og annað baðherbergi.
Sérlega falleg og vel hönnuð íbúð.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hægt er að fá bílastæði í bílakjallara ásamt geymslu gegn aukagjaldi.
Fallegt umhverfi.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í stuttu göngufær við hið glæsilega klúbbhús á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem gæðaveitingastaðir, vínsmökkun og verslanir eru. Stutt  í skemmtilega litla spænska bæi eins og Ciudad Quesada og Algorfa. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. 

Frábærar íbúðir á góðu verði fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Fyrstu áfangar UPPSELDIR. NÝR ÁFANGI kominn í sölu. Aðeins örfáar íbúðir eftir.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK):
3ja herb. íbúð, þe. 2 svefnh. + 2 baðh.:  Verð frá 275.000 Evrur  (41.200.000 ISK) + ca. 13% kostn. við kaupin. 
 
Til  afhendingar í apríl 2025.
Íbúðin er 72,1 fm.
Verönd  40,35 fm.
Samtals 112.3 fm sérafnotaflötur.

Frábær leið til að festa sér góða íbúð á glæsilegum stað þar sem mikil uppbygging á sér stað. 
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO


Traustur byggingaraðili, 
Allar upplýsingar gefur Sigfús Aðalsteinsson, löggiltur fasteignasali, gsm 8989979. sigfus@midbaer.is. Yfir 20 ára reynsla í sölu eigna á Costa Blanca húsæðismarkaðinum.


SKOÐUNARFERÐIR OG VIÐBÓTARKOSTNAÐUR.
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. Öll aðstoð veitt við kaupin sem og afhendingu og annað sem því tengist. 
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 2-3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið ca. 12-13%.



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Miðbær fasteignasala
www.midbaer.is

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skyggnisvegur 13
31.jpg
Skoða eignina Skyggnisvegur 13
Skyggnisvegur 13
806 Selfoss
89.6 m2
Sumarhús
413
445 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Þorrasalir 7
Jón Rafn_vefur.png
Skoða eignina Þorrasalir 7
Þorrasalir 7
201 Kópavogur
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 314
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 314
105 Reykjavík
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
1060 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Bílskúr
Opið hús:29. apríl kl 18:30-19:00
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
122 m2
Fjölbýlishús
514
639 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin