Hlíðarhorn.is kynnir Haukahlíð 2, 102 Reykjavík - Íbúð 319.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í desember 2027 með fyrirvara um öryggisúttekt.
S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 89,625,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.
Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Björt og rúmgóð 4ja herbergja íbúð á 3. hæð. Birt stærð er 119,1 fm þar af 13,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður) og skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðaraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.
Nánari lýsing: Anddyri er rúmgott og opið með góðum fataskáp. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir inn í innri garð. Eldhús er með eyju. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með góðum fataskápum. Tvö góð svefnherbergi, bæði með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og leirljósum steinflísum á gólfi. Tengi fyrir vask í þvottaherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0094 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.
ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 100,9 | 72,9 | ||
105 | 138,4 | 136,9 | ||
101 | 97,2 | 96,9 | ||
105 | 111,4 | 108,9 | ||
105 | 98,8 | 99,9 | ||
105 | 112,3 | 114,9 |