eignasala.is kynnir eignina Bjarkardalur 23, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 229-8733 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Bjarkardalur 23 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-8733, birt stærð 108.2 fm.
EIGNASALA.IS KYNNIR – BJARKARDALUR 23A, ÍBÚÐ 101, 260 REYKJANESBÆ
Björt og sérlega vel skipulögð 108,2 m² fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með SÉRINNGANGI, þremur svefnherbergjum, 17,4 m² verönd, gólfhita, sérgeymslu og sérnotabílastæði.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ SÝNUM ALLA HELGINA!
Eignin er í nýlegu tveggja hæða fjölbýlishúsi, byggðu árið 2023, í Bjarkardal í Innri-Njarðvík. Eignin er samtals 108,2 m² og þar af er sérgeymsla 4,2 m².
Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman. Úr stofu er útgengt á 17,4 m² verönd.
NÁNARI LÝSING
Forstofa: Flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús: Vönduð innrétting í viðartónum með góðu skápa- og vinnuplássi. Eldunareyja með helluborði, innbyggður bakarofn, ísskápur og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott opið alrými með eldhúsi. Stórir gluggar og útgengt á verönd.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Vönduð innrétting, upphengt salerni og sturta með glerþili. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni: Parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í forstofu og á baðherbergi. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Verönd: Rúmgóð 17,4 m² verönd með útgengi úr stofu.
Sérgeymsla: 4,2 m² sérgeymsla fylgir eigninni.
Eigninni fylgir eitt sérnotabílastæði auk sameiginlegra bílastæða á lóð.
Bjarkardalur 23 er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með sex íbúðum, byggt árið 2023. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré. Gólfhiti er í íbúðum og vélræn loftræsting í lokuðum rýmum.
Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, íþróttaaðstöðu og aðra þjónustu.
Helstu kostir eru jarðhæð með sérinngangi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, bjart og opið alrými, gólfhiti, 17,4 m² verönd, sérgeymsla og sérnotabílastæði.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ SÝNUM ALLA HELGINA!
Júlli – 899 0555, Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397, Reynir – 777 0915, Skúli – 898 7209
EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík
tölvupóstur julli@eignasala.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.