BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FÍFUTÚN 2D ÍBÚÐ 203, 700 Egilsstöðum. Ný þriggja herbergja íbúð á efri hæð í nýju fjölbýlishúsi.
Sér inngangur er í íbúðina. ÍBÚÐ 203 Á EFRI HÆÐ. Íbúðin er 70,5 m², þar af geymsla 2,1 m² samkvæmt skráningu HMS.
ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 31. maí 2027.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:
Andyri með einföldum skáp og opið fatahengi..
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á steyptar svalir.
Eldhús með Brúnás innréttingu, helluborð í bekk, ofn og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum.
Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með, op fyrir ísskáp er 186 cm á hæð.
Svefnherbergin eru tvö.
Hjónaherbergi, sexfaldur fataskápur.
Barnaherbergi án fataskáps.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Í þvottahúsi er pláss fyrir tvær vélar í innréttingu.
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins.
EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ FULLBÚINNI SAMKVÆMT SKILALÝSINGU SELJANDA DAGS. 30.10.2026. Flísar verða á baðherbergi og vínylparket á forstofu, alrými og svefnherbergi. Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.
Fífutún 2 er sjö íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er viðsnúið, halli að niðurföllum er mótaður í steyptri þakplötu, tvöfalt ásoðinn þakpappi, XPS plasteinangrun 240mm í tveimur lögum, fleytidúkur og þakmöl. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri frá NorDan Ísland ehf.
Lóðin er sameiginleg 1297,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðin er leigð til 50 ára frá 13.08.2026, skjal nr. 446-E-000646/2026.
Áætlað fasteignamat 2026 m.v. bst. B4, mst. 7, er kr. 44.250.000,-
Gjöld er kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi
- 0.8% af fasteignamati, u.þ.b. kr. 354.000,-
- 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða, u.þ.b. kr. 177.000,-
- 1.6% fyrir lögaðila, u.þ.b. kr. 708.000,-
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali s.s. kaupsamning, veðskuldabréfi, veðleyfi, afsali o.fl. kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá heimasíður lánastofnanna.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.-, með vsk.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.