Fasteignaleitin
Skráð 30. júlí 2026

Engjateigur 17-19

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
47.5 m2
2 Herb.
Verð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
734.737 kr./m2
Fasteignamat
17.100.000 kr.
Brunabótamat
26.650.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Byggt 1992
Jarðhæð
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2019500
Landnúmer
104714
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
08
Vatnslagnir
Upprunaleg
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallegt atvinnuhúsnæði með aukinni lofthæð í Listhúsinu við Engjateig 17-19 í Laugardal Reykjavík. Samkvæmt HMS er eignin skráð 47.5 fermetrara og þar af er sérgeymla í kjallara sem er 7,2 fermetrar. 

Húsnæðið, sem er á jarðhæð hússins, er eitt stórt opið rými með góðri lofthæð og þakgluggum. Aðalinngangur er úr sameign sunnan megin þar sem gengið er inn í önnur verslunar- og veitingarými, en húsið samanstendur af verslunum og veitingastað á jarðhæð og íbúðum á efri hæðu.  Einnig er sérinngangur garðmegin til norðurs og í dag er eignarhlutinn nýttur sem  skrifstofa.


Lýsing eignar:
Komið inn í eignina frá sameiginlegum snyrtilegum flísalögðum gangi.
Stórt rými, parketlagt með góðri lofthæð og þakgluggum. Skilrúm aðskilja rýmið að hluta og einföld eldhúsaðstaða með ísskáp, vaski og hillum í skáp með stórum rennihurðum á vegg. Hægt er að ganga inn í rýmið um sérinngang norðanmegin frá. 
Snyrting, er með vaski og wc. Geymslupláss með skápahurð fyrir ofan snyrtinguna og búningsaðstaða fyrir framan.

Sérgeymsla í kjallara hússins er 7,2 fermetrar að stærð.

Húsið að utan var viðgert og málað fyrir fáum árum síðan og er í góðu ástandi auk þess sem þakjárn er nýlegt.

Lóðin er fullfrágengin og virkilega góð aðkoma er að húsinu. Stórt malbikað bílaplan er fyrir framan húsið með fjölda bílastæða, hellulögð stétt og tjárgróður og baklóð er tyrfð og með trjágróðri.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á grónum stað miðsvæðis í Reykjavík þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, Laugardalslaug, World Class og fallegar útivistaperlur í Laugardalnum.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/03/202210.650.000 kr.25.500.000 kr.47.5 m2536.842 kr.
23/11/20066.580.000 kr.12.000.000 kr.47.5 m2252.631 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vitastígur 9
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vitastígur 9
Vitastígur 9
101 Reykjavík
62.6 m2
Fjölbýlishús
211
1117 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 35
Skoða eignina Mýrargata 35
Mýrargata 35
101 Reykjavík
38.2 m2
Fjölbýlishús
211
1387 þ.kr./m2
53.000.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 19
Hleðslustöð
Hallgerðargata 19
105 Reykjavík
58.8 m2
Fjölbýlishús
211
1087 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 19
Skoða eignina Kuggavogur 19
Kuggavogur 19
104 Reykjavík
61.4 m2
Fjölbýlishús
211
959 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin