Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Einstaklega skemmtilega skipulagða eign í litlu fjölbýli, með tveimur kósý íbúðum í gamla bænum í Hafnarfirði.
Um er að ræða tvær íbúðir á sitt hvorri hæðinni , íbúð 101 er þriggja herbergja (tvö svefnherbergi) er 55,1 fm að stærð, deilir stigahúsi með íbúð efri hæðar.
Íbúð 001 er tveggja herbergja í kjallara (eitt svefnherbergi), með sérinngangi á bakhlið hússins og er 54,8 fm að stærð.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Í húsinu er samtals þrjár íbúðir á tveimur fastanúmerum/eignarhlutum, heildarstærð þessa eignarhluta er því samtals 109,9 fm og ber þessi eignarhlutur því 63,98% hlutdeild í sameign fasteignarinnar.
Þegar núverandi eigandi keypti 2023 var nýlega búið að taka íbúðina á efri hæðinni í góða yfirhalningu. Gengið er að henni um stigahús upp einar tröppur/hæð frá götunni. Í fordyri stigahúss er undir stiganum skemmtilega útbúið lítið þvottahús með tengi fyrir þvottavél og er holið neðst í stigahúsinu flísalagt. Komið er inn í íbúðna í litla forstofu með parketi og fatahengi. Inn af henni er nett baðherbergi með sturtu, upphengdu wc, innréttingu og vask, flísar á gólfi og handklæðaofn. Alrýmið er bjart, með góðri stofu, plássi fyrir matarborð og góðri eldhúsinnréttingu á einum vegg. Pláss er fyrir einfaldan ísskáp í innréttingu og parket er á gólfum. Svefnherbergin eru rúmgóð, bæði með fataskáp, parket á gólfum. Nýjar innihurðir voru settar fyrir nokkrum árum í þessari íbúð og sett hljóðdempandi undirlag undir parketið.
Á neðri hæð er gengið um sérinngang á bakhlið inn í seinni íbúðina. Sú íbúð er með skerta lofthæð (u.þ.b. 2 metrar) og er þar gott hol með fatahengi og þar innaf sér þvottahús/geymsla sem er gluggalaus. Rúmgott svefnherbergi er með innbyggðum fataskáp í vegg og gluggi með opnanlegu fagi. Alrýmið er með eldhúsinnréttingu á einum vegg, plássi fyrir borð eða sófa og inn í horni er hægt að hafa smá skrifstofu. Baðherbergið er með baðkari með sturtu, innréttingu með vask, wc, flísar á gólfi og hluta veggja. Parket á öðrum gólfum íbúðarinnar.
Garður og lóð er í sameign, timburverönd er á vesturhlið í sameign og undir henni köld geymsla.
2021 var skipt um þak á húsinu (járn, pappa, þaksperrur sem þurfti og klæðning gerð á stromp)
2021 var húsið sprunguviðgert af múrarameistara og málað
Frábær staðsetning rétt við miðbæ Hafnarfjarðar í einstaklega rólegri götu þar sem stutt er í helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.