Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu:
SNORRABRAUT 36, 105 Reykjavík - Tilvalin eign sem fyrstu kaup!
Falleg þriggja herberbergja íbúð á þriðju og efstu hæð eignarinnar á eftirsóttum stað í miðbæ Reykjavíkur. Hún skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi og hjólageymslu.Eignin er skráð alls 64,7 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1939. Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNánari lýsing:
Forstofa/hol: Fataskápur með glerhurð og góðu aðgengi að öllum rýmum íbúðarinnar.
Stofa: Björt og rúmgóð.
Eldhús: Með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók við glugga. Eins árs gömul uppþvottavél getur fylgt með, sé þess óskað.
Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp sem ná upp í loft.
Svefnherbergi 2: Bjart og rúmgott herbergi sem hægt er að nýta sem barnaherbergi eða heimaskrifstofu.
Baðherbergi: Flísalagt með hvítum flísum á gólfi og að hluta veggja. Baðkarið er með sturtu yfir.
- Harðparket á gólfi í öllum rýmum íbúðar nema eldhús og baðherbergi, þar eru flísar. - Sérgeymsla: Í kjallara. Stærð u.þ.b. 4,2 fm. (ekki inn í fermetratölu íbúðar)
Þvottahús og þurrkherbergi: Sameiginlegt, í kjallara. Þvottavél getur fylgt með, sé þess óskað.
Hjólageymsla: Sameiginlegt, í kjallara.
Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir, sundhöll og skólar í næsta göngufæri.
Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala,
s. 779-5463 /
anton@trausti.isKristján Baldursson, löggiltur fasteignasali,
s. 867-3040 /
kristjan@trausti.isBóka verðmatwww.trausti.isTrausti á Facebook