LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi fyrir 60 ára og eldri í Sjálandinu í Garðabæ, með yfirbyggðum suðursvölum og stæði í bílageymslu. Innangengt er úr húsinu í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ en þar fer fram fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk þess sem boðið er upp á ýmsa þjónustu og hægt er að fá heitan mat í hádeginu.
Við húsið er einstaklega falleg og vel hirt lóð sem hefur hlotið viðurkenningar frá Garðabæ. Góðar gönguleiðir eru allt í kring og stutt er í fjölbreytta þjónustu. Innisundlaug er hinum megin við götuna og gangstétt fyrir framan húsið er upphituð. Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign á eftirsóttum stað þar sem þægindi, þjónusta og fallegt nærumhverfi fara einstaklega vel saman.
Birt stærð eignarinnar er 112,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 5,3 fm sérgeymsla í kjallara.
Eignin skiptist í forstofu, bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu í opnu rými með eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Að auki fylgir sérgeymsla í kjallara og merkt stæði í bílageymslu og búið er að leggja rafmagn að stæðinu fyrir hleðslustöð.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Ég veiti einnig allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða á netfanginu thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús, vönduð og falleg innrétting með góðu skápaplássi og eldhúseyju. Bakarofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu alrými með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt á 7,7 fm yfirbyggðar suðursvalir.
Svefnherbergi I með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta, vönduð innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og vaski. Flísar á gólfi.
Geymsla innan íbúðar með góðum hirslulausnum. Parket á gólfi.
Sérgeymsla í kjallara (5,3 fm) með hillum og máluðu gólfi.
Bílastæði í bílageymslu, merkt stæði, 01 Y2 - rafmagn er lagt að stæðinu fyrir hleðslustöð.
Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald.
Sameign er snyrtileg og næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð. Frá anddyri hússins er innangengt beint í
Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ, þar sem Félag eldri borgara í Garðabæ hefur einnig aðsetur. Þar fer fram fjölbreytt félags- og tómstundastarf og ýmis þjónusta er í boði, meðal annars heitur matur og kaffi. Snyrtistofa, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa beint á móti og innisundlaug er í Sjálandsskóla.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum netfangið thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.