LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4ra herbergja íbúð með stæði í lokaðri bílageymslu í vönduðu lyftuhúsi við Norðurbrú í Garðabæ. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
Birt stærð eignar er 111.9 fm samkvæmt HMS, þar af er 9,8 fm geymsla. Fyrirhugað fasteignamat næsta árs er kr. 91.550.000,-
Eignin skiptist í opið forrými, rúmgott eldhús, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar en henni fylgir geymsla í kjallara og stæði í lokaðri bílageymslu.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús með vandaðri innréttingu, bakaraofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur með fallegu útsýni og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með sjónvarpsherbergi, parket á gólfi og útgengt á rúmgóða suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Sjónvarpsherbergi í opnu rými með stofu, teiknað sem 3ja svefnherbergið á grunnmynd.
Svefnherbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi II, parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með vandaðri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtutöng.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi.
Geymsla (8,9 fm) í kjallara með aukinni lofthæð og hillum (merkt 01 0025).
Bílastæði í bílakjallara, vel staðsett nálægt inngangi (merkt 01 B30).
Hjóla- og vagnageymsla í sameign með góðu aðgengi inn og út.
Húsgjöld eignar eru 32.343 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags.
Húsið var byggt af BYGG árið 2004 og hefur fengið gott og reglulegt viðhald,
bílastæði í sameignilegum bílakjallara og fyrir framan hús og sameignileg lóð mjög snyrtileg. Sameign hússins er björt og snyrtileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.