STOFN Fasteignasala og Benedikt Ólafsson Lgf. kynna: Í einkasölu glæsilega 4ra herbergja íbúð með aukna lofthæð á efstu hæð á tólftu hæð í vönduðu lyftuhúsi með sérstæði í lokaðri bílgeymslu ásamt hleðslustöð. Tvær lyftur eru í húsinu, sameign öll hin snyrtilegasta, flísar og teppi á gólfum sameignar, mynddyrasími. Á bílastæði eru hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Eignin er skráð samkvæmt FMR 116,2 fm. og þar af geymsla í sameign 7 fm. Stórkostlegt útsýni á þessum eftirsótta stað í Kópavogi. Hörðukór 3, 203 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 12-01, fastanúmer 228-5274 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*Vönduð 4ra herbergja íbúð á 12. hæð, aukin lofthæð.Stórbrotnið útsýni yfir Elliðavatn og fjallagarðanna. Stæði í lokaðri bílgeymslu með hleðslustöð.Tvær lyftur eru í húsinu, sameign öll hin snyrtilegasta.*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*Pantið tíma fyrir skoðun, nánari upplýsingar veita:
Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 661 7788, netfang bo@stofnfasteignasala.is
Tinna Bergmann, Nemi í löggildingu, í síma 869-3675, netfang tinna@stofnfasteignasala.is
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.isEignin skiptist í:
Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi, þvottahús, sérgeymsla, stæði í lokaðri bílgeymslu með hleðslustöð.Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn í góða forstofu með miklu skápaplássi, flísar á gólfi. (upprunalega var forstofan lokuð af með hurð, hurðin er til staðar)
Gangur: innaf forstofu er sérálma með parket á gólfi. Innan álmunnar er baðherbergi, hjónaherbergi, svefnherbergi og þvottahús.
Baðherbergi: er fallegri innréttingu og skáp, upphengt salerni, handklæðaofn, sér sturta og baðkar, flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: er mjög rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi, stórbrotið útsýni yfir Esjuna og höfðuborgina.
Svefnherbergi: gott svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi, fallegt útsýni.
Þvottahús: fyrir framan forstofu á hægri hönd er þvotthús með borðplötu og skolvaski, hillur. Flísar á gólfi.
Eldhús: er bjart og fallegt opið í báða enda, eldhúsinnrétting er hvít og viðarklædd með miklu skápaplássi og góða vinnuaðstöðu, nýlegt sérsmíðað gler ofan borðplötu, innbyggð uppþvottvél, háfur, nýlegt span helluborð frá Whirlpool, nýlegur sjálfhreinsandi bakarofn frá Whirlpool með þreföldu gleri í vinnuhæð, dökkar borðplötur og flísar á gólfi. Borðstofa/ borðkrókur með stórbrotnu útsýni yfir Elliðavatn og fjallagarðanna í kring.
Stofa / borðstofa: er mjög björt og rúmgóð með stórbrotnu útsýni yfir Elliðavatn og fjallagarðanna í kring, parket á gólfi. Frá stofu er útgengt á 12.1 fm. svalir, stórbrotið útsýni.
Svefnherbergi: innaf stofu/borðstofu er mjög rúmgott svefnherbergi með glugga á tvo vegu, parket á gólfi.
Sérgeymsla er innan sameignar á neðstu hæð.
Hjóla- og vagnageymsla aðgengi að tveimur sameiginlegum hjóla- og vagnageymslum.
Þetta er virkilega falleg og vönduð eign með einstöku útsýni. Frábær staðsetning, stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem íþróttaaðstöðu í Kórnum, Golfklúbbinn GKG og útivistarperlurnar við Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.
Hönnuður hússins fékk viðurkenningu umhverfisráðs Kópavogs árið 2007.
Ert þú að fara selja og vantar þig trausta og metnaðarfulla fasteignasala með reynslu og með þinn hag í fyrirrúmi? Ef svo er þá er okkar heiðurinn að vera fasteignasalinn þinn og þinna! Okkur vantar allar tegundir fasteigna á skrá vegna aukinnar sölu!
"Við höfum Heilindi - Dugnaður - Árangur að leiðarljósi".Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.