Fasteignaleitin
Skráð 18. feb. 2026

Skyggnisvegur 13

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
89.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
445.313 kr./m2
Fasteignamat
42.000.000 kr.
Brunabótamat
33.550.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2205747
Landnúmer
167542
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Fallegt sumarhús á 4.012 fm eignarlandi sem er skógi vaxið. Aðalhúsið er 83,4 fm að stærð með þremur svefnherbergjum. Einnig fylgir skráð 6,2 fm geymsla. Húsið er tengt heitu og köldu vatni sem og rafmagni.

Sumarhúsið er staðsett í Úthlíð, á milli Geysis og Laugarvatns – um það bil 100 km frá Reykjavík. Það eru einungis um 15 mínútur að aka að Geysi og um 20 mínútur til Reykholts. Hér má sjá staðsetningu https://ja.is/kort/?page=1&q=skyggnisvegur%2013&x=430099&y=420842&nz=17.00&type=aerial

Úthlíðar sumarhúsasvæðið er lokað með síma- og öryggishliði. Hitaveita er á svæðinu. Í Úthlíð er einnig rekin öflug ferðaþjónusta með meðal annars 9 holu golfvelli, hestaleigu og þjónustu í „Réttinni“ – þar er sundlaug með heitum pottum, veitingastaður o.fl.

Stutt er í þrjá golfvelli og fjölbreytt útivistar- og göngusvæði. Geysir er í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð og u.þ.b. 20 mínútur til Flúða og Laugarvatns.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson, sími: 6955520, netfang: jon@miklaborg.is.

Lýsing eignar: Aðalhús (83,4 fm):
Anddyri með fataskáp. Inn af anddyri er búr með góðum hillum og þar er ísskápur staðsettur í dag. Frá anddyrinu er gengið inn í gang sem tengir svefnherbergin. Svefnherbergi 1: Með tvöföldu rúmi og góðum fataskáp. Svefnherbergi 2: Rúmgott með tvöföldu rúmi. Svefnherbergi 3: Gott herbergi með tveimur rúmum.
Eldhúsið er hálfopið að stofu, með eldri en snyrtilegri viðarinnréttingu, eldavélasamstæðu og góðu skápaplássi. Stofan er björt og rúmgóð, með mikilli lofthæð og kamínu. Þaðan er gengið út á suðurverönd.
Baðherbergi: Viðarinnrétting, tengi fyrir þvottavél, handklæðaofn og sturtuklefi. Gengt er beint út á pall frá baðherbergi.

Tæknirými: Staðsett norðan megin við húsið, þar er hitaveitugrind og stýring fyrir heitan pott.

Utanhúss: Stór og sólrík timburverönd sunnan og vestan megin við húsið. Þar er heitur pottur og mjög gott skjól – fullkomið rými til að njóta útiverunnar.

Skáli við pall: Við timburveröndina vestan megin er skáli með góðu vinnuborði, nýttur fyrir grill og útihúsgögn.

Geymsla (6,2 fm): Skúr norðan við húsið.

Aðrir skúrar á lóð: Skúr 1: Torfkofi, var áður notað sem köld geymsla fyrir matvæli. Skúr 2: Timburskúr með tvöfaldri hurð – hentugur fyrir golfbíl, fjórhjól eða sleða.

Lóðin: Stærð 4.012 fm – eignarlóð. Vaxin fallegum trjám sem mynda skjól og stígar liggja á milli þeirra. Einstaklega fallegt og vel staðsett sumarhúsaland.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/03/202538.750.000 kr.38.750.000 kr.89.6 m2432.477 kr.
16/08/202226.450.000 kr.38.000.000 kr.89.6 m2424.107 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Efsti-Dalur B-gata
Efsti-dalur B-gata
806 Selfoss
66.5 m2
Sumarhús
312
465 þ.kr./m2
30.900.000 kr.
Skoða eignina Miðbraut 10
Skoða eignina Miðbraut 10
Miðbraut 10
806 Selfoss
71.3 m2
Sumarhús
313
770 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Njarðvíkurbraut 50 D
Opið hús:03. júní kl 17:30-18:00
Njarðvíkurbraut 50 D
260 Reykjanesbær
67.7 m2
Fjölbýlishús
313
589 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Brautarholt 20
Skoða eignina Brautarholt 20
Brautarholt 20
105 Reykjavík
36.1 m2
Fjölbýlishús
111
1244 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin