Fasteignaleitin
Skráð 16. feb. 2025

Hólmbergsbraut 13

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær-230
107.6 m2
Verð
45.000.000 kr.
Fermetraverð
418.216 kr./m2
Fasteignamat
30.700.000 kr.
Brunabótamat
37.700.000 kr.
Mynd af Páll Þorbjörnsson
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2534079
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
08
Lóðarréttindi
Leigulóð
ALLT fasteignasala kynnir til sölu staðsteypt iðnaðar- eða geymsluhúsnæði að Hólmbergsbraut 13, bil 8, 230 Reykjanesbæ. Rýmið er á einni hæð með tveimur inngangshurðum með möguleika á millilofti.
Nýbygging sem samanstendur af 14 iðnaðarbilum sem henta sérstaklega vel fyrir smáiðnað, geymslu eða sambærilega starfsemi.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 867-4885, tölvupóstur elin@allt.is


Upplýsingar um eignina
Stærð: Samkvæmt fasteignaskrá HMS er rýmið samtals 107,6 m².
Eignarhluti: Merkt 01-08. F2534079, með tilheyrandi lóð og sameignarréttindum.
Notkun: Iðnaðar- eða geymsluhúsnæði (notkunarflokkur 1).

Lýsing eignar
Eigninni er skilað án innveggja og innréttinga, sem veitir kaupanda sveigjanleika til að aðlaga rýmið að sínum þörfum.
Möguleiki er á uppsetningu millilofts.
Engar snyrtingar eru settar upp, en lagnakerfið gerir ráð fyrir að kaupandi geti komið þeim fyrir síðar.

Byggingarlýsing
Byggingin er úr staðsteyptum veggjum með steyptum innveggjum milli rýma.
Þak klætt með samlokueiningum úr steinull á límtrésbitum.
Útveggir einangraðir með steinull og klæddir lyggjandi báruáli.
Gluggar: Álgluggar með tvöföldu einangrunargleri.
Hurðir: Tvær inngangshurðir (framan og aftan) auk innkeyrsluhurðar með mótoropnun.
Loftræsting: Almenn loftræsting með opnanlegum fögum.
Hvert bil hefur eigið kaldavatnsinntak, hitaveituinntak og rafmagnstöflu.
Gólf: Steypt og afhent án frekari frágangs.

Lóð og aðkoma
Lóðarstærð: 3.841,2 m² – skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð.
Bílastæði: Tvö stæði fylgja hverju bili.
Aðkoma: Malbikuð að framan, grjóthleðsla eða sambærilegur frágangur aftan við byggingu.
 
Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 867-4885, tölvupóstur elin@allt.is


ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ

 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Til leigu
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
300 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Til leigu
3D Sýn
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Bíldshöfði 20
110 Reykjavík
1,501 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin