*GOLFÍBÚÐ* – *GÓÐ STAÐSETNING*
Góð efri hæð með svölum, sér þaksvölum og litlum sérgarði á hinu vinsæla Las Ramblas golfsvæði, um 50 mín akstur suður af Alicante. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa/borðstofa í opnu rými vel tengt eldhúsi. Góð geymsla. Flott útsýni frá þaksvölum.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is.
Loftkæling/hiti. Öryggiskerfi.
Íbúðin selst með húsgögnum og húsbúnaði að hluta.
SNYRTILEG OG FALLEG DRAUMAEIGN GOLFARANS.Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði.
Íbúðin er vel staðsett í rólegri götu á Las Ramblas golfvellinum. Göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum og stutt í La Fuente, þar sem er gott úrval góðra veitingastaða, verslana og þjónustu, matvöruverslana eins og Aldi og Mercadonna. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romero, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Verð: 140.000 Evrur + kostn. (ISK 21.000.000 gengi 1E=150 ISK)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni verið ca. 13%.
LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.Eiginleikar: golf, útsýni, þakverönd, endursölueign, air con, sameiginlegur sundlaugargarður,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,