Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Höfðahlíð 2 íbúð 101 - Nýbygging - Glæsileg 4ra herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í fjórbýli í Glerárhverfi - stærð 106,1 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
* Eignin er staðsteypt, einangruð að utan og klædd með málmklæðningu. Þakplata er úr krosslímdu timbri (CLT).
* Vandaðar innréttingar og fataskápar frá HTH.
* Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
* Harðparket og flísar á gólfum.
* Hljóðdempandi plötur í loftum allra rýma, að baðherbergi undanskildu.
* Innfelld lýsing í loftum.
* Gólfhiti er í allri íbúðinni og handklæðaofn á baðherberginu.
* Loftskiptikerfi
* Hvítar innihurðar
* Áætlaður afhendingartími eignar er lok september 2026
Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum fataskáp
Í eldhúsi er góð eldunareyja með helluborði og vönduð innrétting með innfelldum ísskáp með frysti og uppþvottavél sem fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, þar sem harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og útgengt á steypta verönd, 7,6 m² að stærð skv. teikningum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Vönduð innrétting með handlaug, vegghengt wc, walk-in sturta og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og vönduðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,0 m², 10,8 m² og 14,6 m².
Geymsla/þvottahús er með flísum á gólfi, bekk með skolvaska og er skv. teikningum 4,0 m² að stærð.
Annað
- Sameiginlegt inntaksrými og vagnageymsla fyrir húsið er milli íbúða á neðri hæð.
- Eigninni tilheyrir sérafnotaflötur í garði, sbr. afmörkun á teikningum.
- Hitalagnir eru í gönguleið að húsi, tröppum og stigapalli.
- Sex bílastæði eru á lóðinni. Hver eign hefur eitt bílastæði með til sérafnota. Staurar fyrir rafhleðslu verðar settur upp, dregið í og tengt við hverja íbúð.
- Byggingarverktaki: BB byggingar ehf.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.