Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð með sérinngangi við Eskiás 1G í Garðabæ. Um er að ræða 80,5 m2 íbúð á 2. hæð í vönduðu og viðhaldslitlu fjölbýlishúsi, byggt 2022. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa inn í sameiginlegan garð. Sérgeymsla er innan íbúðar og í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Göngufæri er í skóla, verslanir, veitingahús, sundlaug og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í góða og vel skipulagða göngu- og hjólastíg við sjávarsíðuna og Gálgahrauninu.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 80,5 m² og eru allir fermetrar innan íbúðar.Um er að ræða einstaklega vel skipulagða eign þar sem lögð hefur verið áhersla á vandaðan frágang, góða nýtingu fermetra og fallega hönnun. Allar innréttingar í eldhúsi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar koma frá Trésmiðju GKS. Innréttingar á baði eru frá Parka.
Nánari lýsingForstofa með tvöföldum háum fataskáp og góðu plássi fyrir yfirhafnir og skó. Harðparket á gólfi.
Alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu í samliggjandi rými, og útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa út í fallegan sameiginlegan garð. Harðparket á gólfi.
Eldhús er með vandaðri Nobilia innréttingu, steingrárri borðplötu, góðu skápaplássi og innbyggðum Whirlpool heimilistækjum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð, vel skipulögð og með háum hvítum háum fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, innréttingu frá Parka, Grohe hreinlætistækjum, handklæðaofni og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla (2,9 m
2) er innan íbúðar.
Lóð er sameiginleg og eru allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás.
Bílastæði eru meðfram húsi og við byggingu eignar var sérstaklega gert ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Um húsiðHúsið var byggt árið 2022 og er hannað með áherslu á nútímalegt útlit, vandaðan frágang og lítið viðhald. Sameign er snyrtileg og vel skipulögð og á lóð eru góð bílastæði auk þess sem gert hefur verið ráð fyrir möguleikum á rafbílahleðslu.
StaðsetningEignin er afar vel staðsett, í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ, þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, miðbæ Garðabæjar og alla helstu þjónustu ásamt því að vera í göngufæri við Ásgarðslaug (sundlaug Garðabæjar), og aðrar fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og Gálgahrauninu ásamt því að stutt er í almenningssamgöngur.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.