Fasteignaleitin
Skráð 10. okt. 2026

Vorbraut 8 (302)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
58.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2026
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2543451
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
--- Glæsileg 2ja herbergja íbúð með sérstæði í bílakjallara við Vorbraut 8 í Garðabæ með svölum til suðurs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.vorbraut8-12.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Vorbraut 8 í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt sérgeymslu í kjallara. 

Íbúð 302: Er glæsileg 58,8 fermetra 2ja herbergja íbúð á 3. hæð með svölum til suðurs og rúmgóðri geymslu sem er 8,7 fermetrar að stærð. Afhending er í mars eða apríl 2027 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsi sem er opið við stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Útgengi á svalir til suðurs frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.vorbraut8-12.is

Vorbraut stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Vorbraut býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn. Til suðurs er golfvöllur GKG, Leirdalsvöllur sem er glæsilegur 18 holu völlur. Spottakorn lengra er Vífilstaðavatn og Heiðmörkin með óteljandi hjóla- og göngustígum. Til norðurs er Smáralind ásamt verslunarkjörnum í Lindum og á Dalvegi. Þá er Garðatorg alltaf vinsælt meðal Garðbæinga þar sem eru skemmtilegir veitingastaðir og ýmis þjónusta.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar:
Í eldhúsum og baðherbergjum eru Arens innréttingar (Ormsson). Innréttingar eru í viðarútliti. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Neðri skápar á baðherbergjum eru með skúffu og efri skápar eru með spegli.

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði (innbyggð vifta í helluborði þar sem eldhúseyjur eru), innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu (ef er ekki eldhúseyja).

Hreinlætistæki: Salernisskál (Grohe) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Handlaugar eru ýmist frá Roca eða Valadares. Blöndunartæki eru hitastýrð frá Grohe. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv. skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (4)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásakór 11
Opið hús:14. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ásakór 11
Ásakór 11
203 Kópavogur
85,8 m2
Fjölbýlishús
211
815 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 8 (301)
Bílastæði
Opið hús:10. okt. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Vorbraut 8 (301)
Vorbraut 8 (301)
210 Garðabær
129,4 m2
Fjölbýlishús
423
Tilboð
Skoða eignina Breiðhöfði 15
Opið hús:10. okt. kl 14:00-14:30
Breiðhöfði 501.jpg
Skoða eignina Breiðhöfði 15
Breiðhöfði 15
110 Reykjavík
79,7 m2
Fjölbýlishús
211
1053 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 19
Opið hús:10. okt. kl 14:00-14:30
Breiðhöfði 107.jpg
Skoða eignina Breiðhöfði 19
Breiðhöfði 19
110 Reykjavík
63,9 m2
Fjölbýlishús
211
1002 þ.kr./m2
64.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin