Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali og Hús fasteignasala kynna: Vandað og virkilega hlýlegt 220fm einbýlishús með bílskúr (170,8fm + 49,2fm) á tæplega 16ha landspildu rétt við Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ljósleiðari, hitaveita, gólfhiti, heitur pottur og pallur. Byggingareitur fyrir skemmu. Bjart og fallegt alrými með uppteknu lofti, stór eldhúsinnrétting með mjög miklu borð- skápa- og skúffuplássi og stór herbergi.
Forstofa er með hengi fyrir yfirhafnir og parketflísum á gólfi eins og allt húsið. Gangur eftir endilöngu húsinu. Stofa og eldhús inn til vinstri. Stofan björt og með uppteknu lofti og innbyggðri lýsingu, gluggar að gólfi og hægt að opna rennihurð út á stóran pall. Eldhúsið með stórri hvítri innréttingu og miklu borð- skápa- og skúffuplássi og eyju með borði sem hægt er að sitja við. Svefnherbergin eru fjögur, hjónaherbergið stærst og með stórum fataskápum. Baðherbergið er málað í dökkum lit. Þar er rúmgóð sturtu með glerþili, upphengt klósett, handklæðaofn, handlaug á skúffuskáp og handklæðaskápur í horni. Gengt út á pall og heitur pottur þar beint fyrir utan. Þvottahús fyrir enda gangsins, innrétting þar með skolvaski í vinnuborði og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð. Gengt þaðan fram í 49,2fm bílskúr með gönguhurð, fjarstýrðum innkeyrsludyrum og geymslulofti yfir hluta hans. Að utan er húsið klætt með liggjandi bárujárni, gluggar og hurðir úr tré en rennihurð úr stofu út á pall er úr áli. Bárujárn á þaki. Landið er mosa- og grasivaxið hraun að mestu leiti en jarðvegsskipt plan með byggingareit fyrir skemmu skammt frá húsinu. Víðsýnt til allra átta og endalausir útivistarmöguleikar. Í Árnesi er grunnskóli sveitarfélagsins og nýtt og glæsilegt íþróttahús með líkhamsræktarsal ofl., Neslaug, félagsheimilið Árnes, tjaldsvæði og N1 bensínstöð með grilli og nauðsynjaverslun svo eitthvað sé nefnt. Þá stendur til að brúa Þjórsá yfir í Rangárvallasýslu og tengja við Þjórsárdalsveg við Árnes. Mikil uppbygging og atvinnumöguleikar eru í farvatninu m.a. með uppbyggingu hótels í Þjórsárdal og tengdri starfsemi. Einstakt tækifæri til að eignast vandað og gott hús á svæði sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.
- - VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN - -
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina. S. 896 9565 loftur@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6% 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.