Fasteignaleitin
Skráð 24. júní 2026

Sunnusmári 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
99.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
904.427 kr./m2
Brunabótamat
62.900.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25225156
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LIND Fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur  fasteignasali kynnir afar fallega og einstaklega snyrtilega 99,4 fermetra 3ja herbergja íbúðá 2.hæð við Sunnusmára 3 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í 89,9 fermetra íbúðarrými og 9,5 fermetra geymslu í kjallara. Virkilega gott skipulag þar sem fermetrar nýtast vel. Sérstæði í bílakjallara mð rafhleðslustöð.

Vandaðar sérniðnar gardínum í öllum gluggum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir til suðurs inn í skjólgóðan garð milli Sunnusmára 1-13. Vönduð eldhústæki sem samanstendur af nýjum AEG bakaraofni með sjálfhreinsibúnaði , innbyggðum AEG örbylgjuofni,  kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðurs .

Nánari lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er staðsett við stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. 

Forstofa með  innbyggðum fataskáp
Eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, ásamt góðum búrskáp , innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir, eyja með span helluborði með viftuháf yfir. AEG ofn með sjálfhreinsibúnaði og AEG innbyggðum örbylgjuofni.
Stofa /borðstofa með útgengi út á rúmgóðar suður svalir.
Hjónaherbergi með tveimur fataskápum
Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum, walk-in sturta, innrétting með efri og neðri skápum og auka skáp til hliðar. Handklæðaofn og vegghengt salerni.
Þvottahús með físalögðu gólfi og hvítri innréttingu þar sem að gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð 
Geymsla með máluðu gólfi og hillum á einum vegg sem fylgja.
Bílstæði í bílakjallara með hleðslustöð.

Vandað parket á gólfum og flísar á votrýmum.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Tangabryggja 13
Bílastæði
Skoða eignina Tangabryggja 13
Tangabryggja 13
110 Reykjavík
191 m2
Fjölbýlishús
623
759 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Stóragerði 18
Skoða eignina Stóragerði 18
Stóragerði 18
108 Reykjavík
106.6 m2
Fjölbýlishús
413
703 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
106.4 m2
Fjölbýlishús
322
1080 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin