Fasteignaleitin
Skráð 12. nóv. 2026

Smáragata 8A

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
175.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
182.900.000 kr.
Fermetraverð
1.041.572 kr./m2
Brunabótamat
88.050.000 kr.
Byggt 1932
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20092931
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Tveir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Smáragata 8A er fallegt 175,6 fermetra parhús á tveimur hæðum auk kjallara. Húsið var byggt árið 1932, teiknað af Gunnlaugi Halldórssyni og er fallegt dæmi um fúnkisstíl millistríðsáranna. Hrein og látlaus formgerð, einkennandi gluggasetning og sterkar láréttar og lóðréttar línur gefa húsinu fágað og tímalaust yfirbragð. Stofur og eldhús á aðalhæð ásamt snyrtingu, þrjú rúmgóð herbergi og baðherbergi á efri hæð. Geymslur, þvottahús og vinnuherbergi í kjallara. Frábær staðsetning, glæsilegur garður til suðurs með verönd útfrá stofu, svalir og sólstofa á efri hæð, innkeyrsla með bílastæði við hlið hússins og mjög fallegar upprunalegar útidyr að Smáragötu. Eignin verður eingöngu sýnd í einkaskoðun. Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is

Gengið er inn á aðalhæð hússins frá Smáragötu um glæsilegar upprunalegar útidyr. Komið er inn í litla forstofu en af forstofu tekur við skáli eða hol þar sem gengið er í öll rými hæðarinnar, eldhús til vinstri, stofur beint fram undan og fatahengi og snyrting til hægri. Í holi er fallegur stigi að efri hæð með upprunalegum handriðum, en stigi í kjallara er úr forstofu.
Eldhús er með stórri hvítri innréttingu með svartri granít borðplötu. Eldhúsið var endurgert fyrir um það bil 30 árum en áður var opið frá eldhúsi að borðstofu. Auðvelt ætti að vera að breyta eldhúsi og opna aftur á milli eldhúss og borðstofu. Stofa og borðstofa eru í einu björtu rými þar sem er stór gluggi að garði til suðurs og tvölfaldar svaladyr úr borðstofu að verönd í garði.
Í holi er fallegur upprunalegur stigi að efri hæð með steyptu snúnu handriði. Innan við stigann er fatahengi og snyrting. Í stiganum er hár gluggi sem veitir mikill birtu í stigann og inn á báðar hæðir hússins. Uppi er komið á stigapall eða gang efri hæðar sem er opinn að stiganum og afmarkast af steyptu stigahandriðinu.
Á efri hæðinni eru þrjú herbergi og baðherbergi með sturtu. Herbergin eru öll ágætlega rúmgóð og björt en úr hjónaherbergi er gengið út á rúmgóðar suðursvalir. Svalirnar hafa verið yfirbyggðar að tveimur þríðju hlutum með vel heppnaðri garðstofur sem er hluti af einu herbergjanna og stækkar það verulega. Einnig má ganga úr því herbergi út á svalirnar, sem snúa að garði hússing og liggja afar vel við sólu.
Í kjallara hússins eru geymslur, inntök og lagnarými, þvottahús og vinuherbergi. Lofthæð í kjallara er lægri en á efri hæðum.
Garðurinn er afar fallegur, snýr vel við sólu og er fallega skipulagður og mjög ræktarlegur. Sjá má fyrir sér mikla möguleika á sólpöllum og öðru í garðinum.
Viðhald hússins:
-        Múr: Stutt síðan húsið var málað, múrviðgert austur og suðurhlið fyrir þremur árum.
-        Frárennslislagnir: Myndað fyrir allnokkrum árum, var í lagi þá.
-        Neysluvatnslagnir: Ekki hreyft við í tíð núverandi eiganda.
-        Ofnalagnir: Gólfhiti settur í hluta efri hæðar og eldhúsi, einn upprunalegur ofn í stofu en annað hefur verið endurnýjað fyrir einhverjum árum.
-        Raflagnir: Upprunalegt að hluta en dregið í að nýju að hluta.
-        Þak: Pappi lagður á þakið fyrir þó nokkrum árum.
-        Gluggar og gler: Gler endurnýjað, gluggar upprunalegir en líta flestir vel út.

Hér er um að ræða mjög athyglisverða eign á frábærum stað. Samkvæmt bók sem gefin var út um arkitektinn Gunnlaug Halldórsson, höfund hússins, þá er húsið "dæmi um hreinræktaðann funksjónalisma, án hliðstæðu í íslenskri húsagerð þess tíma en mjög í anda nýrrar byggingarlistar í Evrópu. Húsið er eitt fárra frumverka íslensks funksjónalisma sem varðveist hefur með upphaflegu þakformi og gluggaskipan frá götu séð."  Eign sem vert er að skoða.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 506
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (25).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 506
101 Reykjavík
167,4 m2
Fjölbýlishús
322
1281 þ.kr./m2
214.500.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 604
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (26).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 604
101 Reykjavík
174,5 m2
Fjölbýlishús
322
1284 þ.kr./m2
224.000.000 kr.
Skoða eignina Laufásvegur 19
Skoða eignina Laufásvegur 19
Laufásvegur 19
101 Reykjavík
110 m2
Fjölbýlishús
312
790 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106C
Bílskúr
Þórunnarstræti 106C
600 Akureyri
167,1 m2
Fjölbýlishús
514
506 þ.kr./m2
84.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin