Fasteignaleitin
Opið hús:24. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 20. nóv. 2026

Ferjubakki 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
81.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
694.750 kr./m2
Brunabótamat
40.600.000 kr.
Byggt 1968
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20476541
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignir og Sigríður Lind fasteignasali kynna Ferjubakka 12. Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sér verönd sem snýr í suður. Vel viðhaldið fjölbýlishús. Næg bílastæði og rafhleðslustöðvar til staðar. - Tilvalin fyrstu kaup. 

** Velkomin í opið hús þriðjudag 24.nóv kl 17:00 - 17:30 **


Nánari lýsing:
Forstofa: komið inn í rúmgott hol sem er opið við eldhús og stofu. Parket.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með góðu skápaplássi. Eldavél og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél. Ágætur borðkrókur með glugga sem var endurnýjaður 2022. 
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt. Útgengt á skjólgóða verönd sem snýr í suður. Parket. Gluggar og svalahurð endurnýjað 2024.
Svefnherbergi: Nokkuð stórt herbergi, góður gluggi. Fataskápar. Parket. 
Baðherbergi: Flísalagt bæði gólf og veggir. Gólfhiti. Nettur skápur undir handlaug, speglaskápur fyrir ofan. þreplaus sturta. Upphengt salerni, handklæðaofn. Stæði fyrir þvottavél. 
Sérafnotareitur: Út frá stofu er timburverönd með skjólveggjum. Veröndin snýr til suðurs og er skjólgóð og notaleg á sólríkum dögum. 
Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er skráð 8,7 fm. 

Húsið hefur fengið gott viðhald síðustu árin m.a:
2019
Suðurgafl klæddur með álklæðningu.
2022 Húsið múrviðgert og málað, þak yfirfarið og málað. Þakrennur endurnýjaðar og settar snjógildrur. 
2023 Bílaplan malbikað og settir upp þrír rafhleðslustaurar, samtals 6 stæði í eigu húsfélags. 
2024 Gluggar í stofu og svefnherbergi endurnýjaðir ásamt svalahurð. Gluggi í eldhúsi endurnýjaður 2022.
2026 Lagnir fóðraðar.
Í íbúðinni hefur parket, eldhúsinnrétting og innihurðir verið endurnýjað síðustu ár ásamt því að gluggar og gler í stofu, eldhúsi og svefnherbergi eru endurnýjaðir einnig ný svalahurð. 

Hér er um að ræða einstaklega bjarta og fína íbúð. Frábær staðsetning í nálægð við náttúruna og útivistarsvæðin Heiðmörk, Rauðavatn og Elliðaárdal. Skóli og leikskóli í göngufæri. Stutt í verslanir og þjónustu. Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. sigridur@aldirfasteignir.is / 8994703.

 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkagerði 7
Skoða eignina Bakkagerði 7
Bakkagerði 7
108 Reykjavík
57,7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
986 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Reykjastræti 7
Reykjastræti 7
101 Reykjavík
102,3 m2
Fjölbýlishús
211
1320 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Norðurbrú 5
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Norðurbrú 5
Norðurbrú 5
210 Garðabær
79,9 m2
Fjölbýlishús
211
975 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Lindarbraut 635
Skoða eignina Lindarbraut 635
Lindarbraut 635
262 Reykjanesbær
57,4 m2
Fjölbýlishús
211
584 þ.kr./m2
33.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin