Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Galtalind 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
103 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
853.398 kr./m2
Brunabótamat
57.000.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22329746
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða vel skipulagða þriggja herbergja 103.0 fm íbúð á annari hæð, gengið beint inn af götu, við Galtalind 22.
Sérinngangur er í íbúð, gluggar á þrjá vegu og góðar vestur-svalir.
Snyrtileg íbúð í litlu fjölbýli á þessum vinsæla stað í Lindarhverfinu í Kópavogi.
Stutt er í skóla, leikskóla, alla þjónustu og stofnbrautir.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 97.3 fm merkt 01-02-01 og geymsla er 5.7 fm merkt 01-01-03, samtals 103.0 fm að stærð. 


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Anddyri, hol/herbergjagang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og sérgeymslu. 

Nánari lýsing á eign:
Sérinngangur er í íbúð en komið er inní forstofu er með ágætis fataskápum.
Hol/herbergjagangur þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu og er útgengt á rúmgóðar vestur-svalir úr stofu, og er fallegt útsýni af svölum til vesturs yfir höfuðborgarsvæðið, borðkrókur er við enda stofu og byrjun á eldhúsi við horn glugga.
Eldhús er innaf borðstofu, upprunanleg eldhúsinnrétting er í eldhúsi með efri og neðri skápum og eru flísar á vegg milli efri og neðri skápa, helluborð í innréttingu og gufugleypir yfir helluborði, gert er ráð fyrir uppþvottavél og einföldum ísskáp í innréttingu, gluggi til austurs í eldhúsi.
Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni og eru fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hornbaðkar og hlaðinn sturtuklefi, skápur við hlið baðvasks, vegghengt salerni, handklæðaofn á vegg, gluggi er á baðherbergi.
Ágætis þvottaherbergi er innaf forstofu og er gluggi á þvottaherbergi.
Sérgeymsla er í sameign húss.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum íbúðar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 1 B
Skoða eignina Sjávarborg 1 B
Sjávarborg 1 B
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
686 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Sjávarborg 1 A
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin