Fasteignaleitin
Opið hús:07. sept. kl 16:30-17:00
Skráð 3. sept. 2026

Öldugata 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
65.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
1.022.936 kr./m2
Brunabótamat
37.150.000 kr.
Byggt 1927
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2277164
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Gullfalleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Öldugötu í Reykjavík.  Íbúðin var töluvert endurnýjuð fyrir nokkrum árum. Frábær staðsetning við miðborgina. 

Íbúðin er í húsi þar sem áður voru skrifstofur.  Árið 2004 var notkun hússins breytt í íbúðarhúsnæði. Í þessum breytingum var húsið mikið endurnýjað og í raun byggðar inn í það íbúðir, sem eru því í grunninn frá árinu 2004.
Komið er inn í rúmgott hol með parketi og fataskáp.  Björt og rúmgóð parketlögð stofa og borðstofa, gólfsíður gluggi og útgengi út á svalir í suður. Eldhús með parketi á gólfi og hvítri snyrtilegri innréttingu sem var skipt um 2017. Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi. Í sameign eru sérgeymslur íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús.  

Virkilega falleg eign þar sem eldri hönnun fær að njóta sín í bland við nútíma hönnum, m.a. loftlistar og "gamaldags" gólflistar sem gefa íbúðinn fallegan sjarma.  Einstök staðsetning í rótgrónu hverfi þar sem miðborgin er í þægilegu göngufæri. Hér má njóta kyrrðar Vesturbæjarins en um leið alls þess sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. Stutt er að Tjörninni, Austurvelli, gömlu höfninni og Granda og fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa, verslana og menningar er í næsta nágrenni.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/02/201625.950.000 kr.72.400.000 kr.161.8 m2447.466 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víðimelur 63
Skoða eignina Víðimelur 63
Víðimelur 63
107 Reykjavík
77.8 m2
Fjölbýlishús
211
834 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 1
Skoða eignina Klapparstígur 1
Klapparstígur 1
101 Reykjavík
61.1 m2
Fjölbýlishús
211
1023 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 101
Opið hús:05. sept. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 101
108 Reykjavík
81.5 m2
Fjölbýlishús
211
980 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn A 610
Opið hús:05. sept. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn A 610
108 Reykjavík
57.3 m2
Fjölbýlishús
211
1185 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin