Fasteignaleitin
Skráð 1. okt. 2026

Mýrargata 26

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
130.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
126.500.000 kr.
Fermetraverð
972.329 kr./m2
Brunabótamat
78.750.000 kr.
Byggt 2014
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2326650
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir: Vönduð og björt 130,1 fm 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og sér þvottahúsi ásamt sérmerktu stæði í bílakjallara. Gólfhiti og gólfsíðir gluggar í stofu og inn í hjónaherbergi. Öll þjónusta er í göngufæri, hvort sem horft er til miðborgarinnar, Grandagarðs eða Vesturbæjar, og má því segja að ef staðsetning skiptir máli, þá er Mýrargata 26 staðurinn til að vera.

Nánari lýsing

Komið er inn í flísalagða forstofu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu alrými með gólfsíðum gluggum og útgengi á vestur-svalir. Eldhús er með fallegri innréttingu og góðu skápa- og vinnusplássi. Hvítur kvarts-steinn, undirlímdur vaskur, bökunarofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél eru í eldhúsi. Aðal baðherbergið er bæði með sturtu og baðkari, góðri innréttingu og upphengdu salerni. Hjónasvíta er rúmgóð og björt með stórum gólfsíðum gluggum og innbyggðum fataskápum. Inn af herberginu er sér baðherbergi með upphengt salerni, sturtu, baðinnréttingu og handklæðaofni. Tvö góð barnaherbergi og er annað þeirra sérlega rúmgott. Þvottahús er með flísum á gólfi, skolvask og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Eigninni fylgir 7,2 fm geymsla í kjallara ásamt sérmerktu bílastæði í bílakjallara þar sem búið. Búið að er leggja lagnir fyrir rafhleðslustöðvar.

GÓLFEFNI: Parket er á öllum gólfum að undanskyldu baðherbergjum, forstofu og þvottahúsi en þar eru flísar.


Húsið var byggt árið 2014, hannað með opnum garði í miðju hússins. Þrjár lyftur eru í húsinu og á 6 og 7 hæð eru sameiginlegar þaksvalir með einstöku útsýni. Í húsinu er öflugt húsfélag og starfandi húsvörður.


Allar nánari upplýsingar veitir

Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/02/201554.450.000 kr.53.600.000 kr.129.1 m2415.182 kr.Já
25/02/201554.450.000 kr.53.600.000 kr.129.1 m2415.182 kr.Já
12/12/20125.220.000 kr.1.468.162.000 kr.4507.7 m2325.700 kr.Nei
12/12/20125.220.000 kr.1.468.162.000 kr.4507.7 m2325.700 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mávahlíð 38
Hleðslustöð
Diddi_vefur (68).jpg
Skoða eignina Mávahlíð 38
Mávahlíð 38
105 Reykjavík
111.9 m2
Fjölbýlishús
413
937 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Laufásvegur 19
Skoða eignina Laufásvegur 19
Laufásvegur 19
101 Reykjavík
110 m2
Fjölbýlishús
312
790 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Ásholt 2
Ásholt 2
105 Reykjavík
109.8 m2
Fjölbýlishús
312
1034 þ.kr./m2
113.500.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.1 m2
Fjölbýlishús
422
1082 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin