Fasteignaleitin
Skráð 6. júlí 2026

Bergstaðastræti 84

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
305.3 m2
8 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
120.620.000 kr.
Byggt 1932
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20092071
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Vandað og flott 305 fm. einbýlishús með bílskúr við Bergastaðastræti 84, 101 Reykjavík. Tvær innkeyrslur eru við húsið. 

Í húsinu eru fimm herbergi, þrjár stofur, tvö baðherbergi og eitt gestasalerni. 

Húsið er mjög vel staðsett neðan við götu með góðum suðurgarði.

Húsið hefur fengið gott viðhald og allar endurbætur á því hefur verið með vandaðasta móti;
Fyrir um 20 árum var eignin uppgerð að innan, þ.m.t. voru endurnýjuð gólfefni, innréttingar, lýsing, lagnir, rafmagn, gluggar yfirfarið og einangrað að innan.
Húsið var stækkað á þessum tíma um 50 fm, byggð var viðbygging þar sem stækkar kjallarann og gefur góða stofu/sjónvarsrými.

Bókið skoðun hjá Guðlaugi í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is  



Aðalhæð hússins: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum og aðgengi inn á gestasalerni, þar er opnanlegur gluggi, ljósar flísar upp miðjan vegg að hluta. Handlaug og upphengt salerni. Frá forstofu er komið inn í bjart og opið hol með flísum á gólfi. Þar er hátt til lofts og glæsilegur teppalagður stigi með aðgengi upp á efri hæð hússins. Frá holinu/stigagangi er gengið inn í eldhús, og stofu sem er samliggjandi borðstofu. Eldhúsið er með niðurtekið loft, innfelld ljós og með sömu flísum á gólfi og eru í holinu og inn í forstofu. Eldhúsinnrétting er L-laga og með eyju sem er áföst við einn vegg. Innréttingin er hnota og með hvítum stein á borðum og undirlímdan vask. Við eldhúsið er rúmgóð borðstofa sem liggur samliggjandi með stofu, bjartar og rúmgóðar stofur. Gegnheilt niðurlímt parket er á gólfum inn í stofum og inn í borðstofu. Útgengi er út frá borðstofu út á svalir og frá svölum niður í afar skjólsælan, stóran og gróinn suðurgarð.

Efri hæð hússins  Á efri hæð er komið upp í alrými með niðurlímt parket á gólfi. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi og eitt sjónvarpsherbergi sem auðvelt að breyta í svefnherbergi. Gott herbergi sem er í dag notað sem fataherbergi og auðvelt er að breyta aftur í herbergi. Öll herbergin eru með niðurlímt parket á gólfum. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með útgengi út á suðursvalir og rúmgóðu fataherbergi innaf sem áður var svefnherbergi og hægt að breyta til baka. Á hæðinni er einnig baðherbergi með flísum á gólfi. Sturta og  dökk innrétting með hvítri handlaug og skúffum þar fyrir neðan. Upphengt salerni og aðstaða fyrir þvottavél.


Kjallari hússins: Frá aðalhæð hússins er gengið niður stiga inn í hol með aðgengi að öðrum rýmum hæðarinnar. Kjallarinn er að hluta með fullri lofthæð og sér inngangi. Þar er stofa/sjónvarpshol með tvöfaldri útgangshurð og parketi á gólfi. Góð skjólsæl verönd með heitum potti. Þar við hlið er rúmgott herbergi.  Á hæðinni er auk þess eldhús sem áður var þvottahús. Auk þess er baðherbergi á hæðinni


Bílskúr hússins: Bílskúrinn er 19,3 fm og bílastæði við bílskúr.

Garðurinn: Hann er afar skjólsæll og gróinn suðurgarður.
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fagrihvammur 12
3D Sýn
Heitur pottur
Opið hús:05. ágúst kl 18:00-19:00
Skoða eignina Fagrihvammur 12
Fagrihvammur 12
220 Hafnarfjörður
310.3 m2
Einbýlishús
1026
638 þ.kr./m2
197.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 - Heklureitur íb 601
Bílastæði
Laugavegur 168 - Heklureitur íb 601
105 Reykjavík
294.6 m2
Fjölbýlishús
322
747 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Erluás 31
Bílskúr
Skoða eignina Erluás 31
Erluás 31
221 Hafnarfjörður
284.2 m2
Einbýlishús
735
Fasteignamat 169.550.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Laugaborg (124)
Hleðslustöð
Innigardur_30.jpg
Skoða eignina Laugaborg (124)
Laugaborg (124)
105 Reykjavík
81.5 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin