Óskar Már Alfreðsson lgf og Prima fasteignasala kynna eignina Klukkuvellir 9 merkt 01-02 fastanúmer 229-542 221 Hafnarfjörður.
Einstaklega glæsilegt og vel hannað 5-6 herbergja enda raðhús með bílskúr við Klukkuvelli 9 í Hafnarfirði. Eignin er skráð alls 178 fm að stærð og þar af er bílskúrinn 36,6 fm. Eignin skiptist þannig: Forstofa, tvö baðherbergi, sjónvarpshol, eldhús, stofa og borðstofa. Fjögur góð svefnherbergi ásamt þvotta húsi og bílskúr. Einstaklega fallegur og vel hannaður afgirtur garður með góðum pöllum, sjarmerandi garðskýli og heitum potti. Snjóbræðsla í plani. Þetta er frábærlega vel staðsett og falleg eign sem vert er að skoða.
/// Hægt að bæta 5 svefniherberginu við.
/// Glæsilegur 140 fm pallur í suður sem er afgirtur með heitum potti.
/// Nýtt eldhús.
/// Frábær staðsetning.
/// Mjög stutt í skóla og leikskóla, í göngufæri.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er flísalögð og með góðum hvítum skápum.
Gestasnyrting: Nýlega standsett er inn af forstofu,flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni og sturta.
Sjónvarpshol: Tengir rými eignarinnar saman. Harðparket er á gólfi.
Eldhúsið: Er allt ný standsett á glæsilegan hátt. Ný eldhúsinnrétting og tæki frá KVIK. Mjög gott skápa og vinnupláss, Rúmgóð eyja með miklu skápaplássi og vínkæli.
Stofa/borðstofa: Eru samliggjandi í opnu rými með eldhúsi. Mikil lofthæð er í rýminu og er það bjart þar sem gluggar eru á gafli hússins. Harðparket er á gólfi og útgengi út í garð.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergin þrjú: Eru öll rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi. Hornbaðkari, sturtu og upphengdu salerni. Góður gluggi er á baðherbergi,flísalagt í hólf og gólf.
Baðherbergi 2: Flísalagt í hólf og golf. Sturta með fallegri innréttingu og spegil.
Þvottaherbergi: Er með góðri innréttingu og skolvask þar sem tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, flísar á gólfi. Geymsluloft er yfir þvottahúsinu. Þaðan er gengið inn í bílskúr.
Verönd: með góðum 140m2 sólpalli og "rauðvíns" skýli og afgirtum garði á alla vegu.
Heitur pottur er á verönd með hitastýringu.
Bílskúr: Með tveimur geymsluloftum og góðri innkeyrsluhurð. Þaðan er gengið inn í rúmgott auka herbergi sem nýtist sem vinnuherbergi /svefnherbergi í dag og úr því herbergi er útgengt á verönd.
Snjóbræðsla er í bílaplani.
Stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Óskar Már Alfreðsson lgf
oskar@primafasteignir.is
615-5200
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.