Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Árakur 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
105.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
812.677 kr./m2
Brunabótamat
59.200.000 kr.
Byggt 2007
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22901551
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:

Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja 105,7 fm íbúð við Árakur 5 í Garðabæ. Íbúðin er á jarðhæð með sér inngangi og sérafnotareit út frá stofu. Eignin er í vönduðu tveggja hæða fjölbýlishúsi ásamt kjallara, byggt árið 2007. 
Birt stærð íbúðar er 91,2 fm og geymslu er 14,5 fm, samtals 105,7 fm. Fyrir liggur þinglýst yfirlýsing sem inniheldur heimild til að byggja pall sem nær 260 cm frá útvegg með samræmdu útliti auk þess að setja glerlokun undir svalir. 

Eignin skiptist í forstofu, alrými með holi, eldhúsi og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 

✅ Þriggja herbergja íbúð í góðu tveggja hæða fjölbýlishúsi
✅ Sér inngangur og sér afnotareitur út frá stofu
✅ Tvö rúmgóð svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar
✅ Næg bílastæði, skilgreind eru tvö bílastæði á íbúð
✅ Frábær staðsetning í einu vinsælasta hverfi Garðabæjar


Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur. 
Alrými: Er með eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu og björtu rými, parket á gólfi. 
Eldhús: Eikar innrétting með bakarofni, helluborði, háf yfir úr burstuðu stáli, tengi fyrir uppþvottavél. 
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð herbergi með fataskápum, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari með sturtu yfir.
Geymsla: Stór geymsla, staðsett í kjallara. 
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. 

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is 

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg íbúð 121
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 121
105 Reykjavík
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
939 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 112
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 112
105 Reykjavík
105 m2
Fjölbýlishús
312
950 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Skoða eignina Bjarkardalur 21
Bjarkardalur 21
260 Reykjanesbær
104 m2
Fjölbýlishús
43
697 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Lyngás 1G
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lyngás 1G
Lyngás 1G
210 Garðabær
59.9 m2
Fjölbýlishús
211
1017 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin